Back to search

University of Iceland

Skýrslutökur lögreglu af brotaþolum nauðgana. Gagnast hugrænar aðferðir betur en hefðbundnar skýrslutökuaðferðir við upplýsingaöflun frá brotaþola í áfalli?

Abstract

dc:description.abstract

Megintilgangur þessarar ritgerðar er að svara þeirri spurningu hvort hugrænar aðferðir gagnist betur en hefðbundnar aðferðir lögreglu við skýrslutöku á brotaþolum nauðgana. Farið er yfir skilgreiningar á nauðgun, tíðni þeirra og afleiðingar. Annars vegar er fjallað um hvernig aðferðir lögreglu við skýrslutöku geta takmarkað árangur og upplýsingaflæði. Og hinsvegar skýrslutökur sem byggðar eru á hugrænum aðferðum sem talið eru veita meiri upplýsingar og eru vænlegri til árangurs. Varpað verður ljósi á þá þætti sem valda því að brotaþolar nauðgana eru illa í stakk búnir til þess að sitja skýrslutöku hjá lögreglu sem ekki byggja á hugrænum aðferðum. Margvíslegir þættir hafa þar áhrif, bæði líffræðilegir þættir og einnig samfélagslegir líkt og viðhorf og staðalmyndir lögreglunnar. Svo virðist sem hugrænar aðferðir líkt og hugræna viðtal Fisher og Geiselman gefi betri niðurstöður við skýrslutökur á brotaþolum nauðgana meðal annars vegna þess hversu persónumiðuð aðferðin er. Einnig hefur verið sýnt fram á að sú aðferð hafi meðferðarlegt gildi. Rannsóknir hafa sýnt fram á að mannúðlegar aðferðir, þar sem komið er fram við brotaþola með virðingu, honum sýndur skilningur og samúð, reynist áhrifaríkari bæði fyrir brotaþola og lögreglu þar sem meiri upplýsingar um glæpinn koma fram og einnig upplifir brotaþoli jákvæð viðbrögð í sinn garð sem hjálpar til við að vinna úr áfallinu og hvetur hann til frásagnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Katrín Ósk Guðmannsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/24783
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/24783

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Katrín Ósk Guðmannsdóttir 1981-. Skýrslutökur lögreglu af brotaþolum nauðgana. Gagnast hugrænar aðferðir betur en hefðbundnar skýrslutökuaðferðir við upplýsingaöflun frá brotaþola í áfalli?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/24783