University of Iceland
Fyrsta samtal ljósmóður við konu í byrjandi fæðingu á Fæðingarvakt - Rannsóknaráætlun
Abstract
dc:description.abstractRannsóknaráætlun þessi gerir grein fyrir rannsókn sem áætlað er að fari af stað haustið 2016 á Fæðingarvakt 23B. Rannsóknin er hluti af átaki til fjölgunar eðlilegum fæðingum. Rannsóknaráætlunin inniheldur fræðilegan bakgrunn rannsóknarinnar og gerir grein fyrir aðferðafræðinni. Frekari heimildarleit fer fram eftir að gagnasöfnun líkur. Skilgreining á eðlilegri fæðingu er afstæð og sprettur upp úr þeirri menningu sem umlykur barneignaferlið hverju sinni. Þegar kona kemur inn í byrjandi fæðingu getur hún fundið fyrir óöryggi varðandi framhaldið og líklega er hún að hitta þá ljósmóður sem kemur til með að sinna henni í fyrsta skiptið. Lítið er til af rannsóknum á samskiptum ljósmæðra og kvenna, þegar konur leita til fæðingardeildar í byrjandi fæðingu og hefur rannsókn af þessu tagi ekki verið gerð á Íslandi áður. Í erlendum rannsóknum kemur fram að ljósmæður leggja áherslu á að meta konuna með tilliti til þess hvort hún sé byrjuð í fæðingu eða hvort hún geti verið lengur heima. Ljósmæður reyna að koma til móts við þarfir konunnar en þær þurfa einnig að fylgja reglum stofnunarinnar og getur togstreita myndast hjá þeim vegna þess. Konur upplifa gjarnan óvissu með hvenær þær eiga að koma á fæðingarstað og þegar þær koma þá upplifa valdleysi á meðan þær bíða eftir samþykki ljósmóður fyrir því að leggjast inn á fæðingarstofu. Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða fyrstu samskipti ljósmæðra við konur og stuðningsaðila þeirra, þegar konur í byrjandi fæðingu hafa samband eða koma á Fæðingarvakt 23B. Hugmyndafræðilegur grunnur rannsóknarinnar er ljósmóðurfræðileg nálgun á fæðingarferlið sem miðar að eðlilegri fæðingu og að ljósmóðirin meti konuna og samþætti upplýsingar til þess að geta tekið ákvörðun um hvað hentar þessari konu best, miðað við hennar ástand og hennar óskir. Á milli þeirra þarf að myndast gagnkvæmt samband sem byggir á trausti. Leitast verður við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hvað felur fyrsta viðtal á fæðingarstað í sér? Hvernig fer það fram? Hver er tilgangur þess? Rannsóknaraðferðin er eigindleg og verður notast við ethnografiu við söfnun og greiningu rannsóknargagna. Gagna verður aflað með vettvangsathugunum og viðtölum á vettvangi, bæði við ljósmæður, barnshafandi konur og stuðningsaðila þeirra. Ávinningur af rannsókninni eru að niðurstöður hennar geta varpað ljósi á samskipti ljósmæðra og kvenna í byrjandi fæðingu og nýst til að þróa og samræma móttöku kvenna á Fæðingarvakt og efla samfellda umönnun í barneignarferlinu. Lykilorð: gagnkvæmt samband, eðlileg fæðing, byrjandi fæðing, ljósmóðir, ethnografia.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir 1977-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/24756
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/24756