Back to search

University of Iceland

Fyrirbygging ofbeldis á geðdeildum: Fræðileg samantekt

Abstract

dc:description.abstract

Ofbeldi er algengt vandamál á geðdeildum. Ofbeldi hefur áhrif á heilsu, öryggi og velferð sjúklinga og starfsfólks. Því þarf að koma auga á áhættuþætti ofbeldis og finna viðeigandi leiðir sem geta dregið úr því. Markmið þessarar samantektar var að finna þær leiðir sem gætu gagnast til að draga úr ofbeldistilvikum á geðdeildum. Leitað var að rannsóknargreinum sem fjalla um vandamálið og áhættuþætti þess og að rannsóknum á aðferðum til að fyrirbyggja ofbeldi og bregðast við því. Til eru matstæki sem meta áhættu á ofbeldi og geta sagt til um líkur á ofbeldishegðun og í framhaldi er hægt að grípa til viðeigandi ráðstafanna í samræmi við niðurstöður matsins. Tengsl eru á milli umhverfisþátta, skipulags deilda, samsetningar sjúklingahóps og ofbeldis. Mönnun á deild, reynsla starfsfólks og þjálfun þess skiptir máli þegar horft er til ofbeldistilfella. Auk þess hafa samskipti á milli starfsfólks og sjúklinga áhrif. Of strangar reglur á geðdeildum geta verið orsakavaldur ofbeldis og þarf því að vanda til verka þegar reglur eru settar. Hugsanlegt er að skipulögð virkni og notkun slökunarherbergja geti dregið úr ofbeldishegðun sjúklinga. Þegar sjúklingar eru órólegir og sýna af sér hegðun sem getur leitt til ofbeldis er mikilvægt að starfsfólk kunni að bregðast við og geti beint sjúklingum í átt að innri ró. Algengt er að notast sé við meðferðarformið gátir á geðdeildum. Þá hefur starfsfólk nánari gætur á sjúklingum, en gagnsemi gáta er umdeild. Mikilvægt er að að hjúkrunarfræðingar og annað starfsfólk geðdeilda þekki þá þætti sem eru líklegir til að ýta undir ofbeldi og þekki sömuleiðis leiðir til að draga úr því til þess að auka gæði og árangur hjúkrunar. Lykilorð: Ofbeldi á geðdeildum, fyrirbygging, sjúklingar, hjúkrunarfræðingar, starfsfólk, umhverfi og samskipti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Vala Karen Gunnarsdóttir 1991-
  • Helena Aagestad 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/24743
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/24743

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vala Karen Gunnarsdóttir 1991-; Helena Aagestad 1986-. Fyrirbygging ofbeldis á geðdeildum: Fræðileg samantekt. 2016. http://hdl.handle.net/1946/24743