Back to search

University of Iceland

„Maður verður allavegana að mæta í hvítu í sitt eigið brúðkaup.“ Umfjöllun um brúðarklæðnað íslenskra kvenna í nútíð og fortíð

Abstract

dc:description.abstract

Brúðkaup er að margra mati ein stærsta hátíð mannsævinnar með öllum sínum hefðum og helgisiðum. Í þessari ritgerð verður stiklað á stóru yfir helstu brúðkaupshefðir okkar Íslendinga. Áhersla er lögð á brúðarklæðnað íslenskra kvenna og þróun hans í gegnum tíðina. Þá er átt við breytinguna sem varð frá því að konur giftu sig í sínum bestu fötum, sem þær höfðu ef til vill átt áður og notuðu síðan upp frá því á tyllidögum, yfir í hinn hvíta og mikla einnota brúðarkjól. Saga hvíta brúðarkjólsins verður rakin og hefðin fyrir notkun hans könnuð, hefð sem enn í byrjun 21. aldar stendur traustum fótum. Tekin voru viðtöl við sex giftar konur og dregnar upp ástæður kjólavals þeirra. Tvær þeirra kusu að giftast í gráu. Hinar tóku hvítt fram yfir. Helstu niðurstöður eru að þegar kemur að litavali á brúðarklæðnaði eru aðal áhrifavaldar hvort um fyrsta brúðkaup er að ræða og aldur brúðarinnar. Hvít brúðarföt virðast ansi rótgróin hefð hér á Íslandi og má segja miðað við niðurstöður þessarar rannsóknar, að hvítur brúðarkjóll sé orðinn að helgisið hérlendis.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Arna Jónsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/24725
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/24725

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Arna Jónsdóttir 1990-. „Maður verður allavegana að mæta í hvítu í sitt eigið brúðkaup.“ Umfjöllun um brúðarklæðnað íslenskra kvenna í nútíð og fortíð. 2016. http://hdl.handle.net/1946/24725