Back to search

University of Iceland

Á ég heima hér? Staða barna með erlendan bakgrunn á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Umfjöllunarefni ritgerðarinnar er börn með erlendan bakgrunn á Íslandi. Í eftirfarandi köflum verður fjallað um bakgrunn þessara barna og stöðu með það að markmiði að tengja umræðuna við ýmis hugtök sem eiga við, svo sem menningu, fjölmenningu, þverþjóðleika og aðlögum. Vaxandi fólksflutningar milli landa kalla á aukna umræðu um stöðu innflytjenda, sérstaklega barna sem í hlut eiga en ákveðinn skortur hefur verið á þekkingu um málefni barna með erlendan bakgrunn. Þrátt fyrir að umræðuefnið sé börn á Íslandi með erlendan bakgrunn er einnig farið yfir málefni barna með erlendan bakgrunn á alþjóðavísu vegna þess að erlendar rannsóknir um málefnið eru mun viðameiri og til eru ítarlegri erlendar upplýsingar um þessa einstaklinga heldur en íslenskar. Einnig er gagnlegt að bera saman erlendar rannsóknir við íslenskar, til þess að varpa frekara ljósi á málefnið. Fjallað er um aðstæður þessara barna í íslenskum skólum og hvernig þeim hefur gengið að fóta sig í því umhverfi. Helstu niðurstöður umræðunnar eru þær að börnum með erlendan bakgrunn á Íslandi gengur verr í skóla en innfæddum jafnöldrum þeirra. Vísbendingar eru á lofti um að þessi börn fái ekki þá aðstoð sem þau þurfa til þess að eiga sömu tækifæri og aðrir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Svanlaug Björg Másdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/24228
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/24228

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Svanlaug Björg Másdóttir 1982-. Á ég heima hér? Staða barna með erlendan bakgrunn á Íslandi. 2016. http://hdl.handle.net/1946/24228