Back to search

University of Iceland

Myndbirtingar og birting ummæla á samfélagsmiðlum. Er núverandi löggjöf nægileg eða er breytinga þörf?

Abstract

dc:description.abstract

Aldrei hefur verið jafn auðvelt fyrir menn að eiga í samskiptum sín á milli og miðla skoðunum, hugsunum, myndum, eða atburðum. Samfélagsmiðlar hafa á einungis nokkrum árum orðið ein helsta samskiptaleið einstaklinga. Varla finnst sá maður á Íslandi í dag sem ekki nýtir sér samfélagsmiðla að einhverju leyti. Ljóst er að samfélagsmiðlar eru með stærstu persónuverndarverkefnum nútímans. Þróunin hefur orðið svo hröð að löggjöf hefur ekki náð að breytast í takt við hana. En þarf löggjöfin að breytast? Hvað er til ráða ef mynd eða ummæli eru birt á samfélagsmiðli gegn vilja viðfangsefnis myndanna eða ummælanna? Ætlunin með ritgerð þessari er að fara heildstætt yfir það réttarumhverfi sem er gildandi í íslensku samfélagi, hvaða lagabálkar og lagagreinar eigi við um efnið og dómaframkvæmd þar um til að skoða möguleg úrræði. Lagaumhverfi landanna í kringum okkur verða athuguð sem og hvernig samfélagsmiðlarnir sjálfir geta skipt máli hvað réttarúrræði varðar. Athyglinni verður beint að einstaklingum og þeirra athöfnum á Internetinu fremur en fjölmiðlum þar sem mikið hefur verið skrifað um fjölmiðla á síðastliðnum árum. Fyrst er íslensk löggjöf skoðuð og þá fremst stjórnarskráin. Svo eru almenn hegningarlög, lög um persónuvernd, skaðabótalög, höfundalög og fjölmiðlalög skoðuð hvert á fætur öðru. Því næst er farið yfir önnur úrræði, t.a.m. bráðabirgðagerðir. Að því loknu eru mikilvægir lagabálkar í Danmörku, Noregi og Svíþjóð skoðaðir og athugað hvort þeim svipi til þeirra íslensku og hvers konar vernd þeir bjóði uppá. Því næst eru skilmálar samfélagsmiðla teknir til skoðunar en þar sem ekki er möguleiki að kynna sér alla miðlana eru fjórir miðlar valdir og þeir sérstaklega skoðaðir. Athugað er hvers konar vernd skilmálarnir veita og hvernig einstaklingum er gert að bera sig eftir aðstoðinni. Í lokin eru niðurstöður þessa efnis teknar saman og komist að niðurstöðu um það hvort núgildandi löggjöf nái að taka einnig til samfélagsmiðla eða hvort breytinga sé þörf og þá hvers konar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Salka Sól Styrmisdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/24222
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/24222

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Salka Sól Styrmisdóttir 1990-. Myndbirtingar og birting ummæla á samfélagsmiðlum. Er núverandi löggjöf nægileg eða er breytinga þörf?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/24222