University of Iceland
„Þessi erfiðu þungu einstaklingsmál.“ Persónuleg ráðgjöf náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var þrenns konar. Í fyrsta lagi að kanna upplifun náms- og starfsráðgjafa af persónulegri ráðgjöf í grunnskólum. Í öðru lagi að kanna viðhorf þeirra til þess hversu vel undirbúnir þeir eru til að takast á við persónuleg og félagsleg vandamál sem hrjá nemendur. Og í þriðja lagi að fá innsýn inn í helstu vandamál þeirra einstaklinga sem sækjast eftir persónulegri ráðgjöf. Rannsóknin var unnin með eigindlegri rannsóknaraðferð og byggist á viðtölum við sjö náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður sýndu að meirihluti starfstíma náms- og starfsráðgjafa fer í persónulega ráðgjöf og virðist þörfin fyrir slíka ráðgjöf vera mikil. Einnig kom í ljós að helstu vandamál sem hrjá börn og unglinga í dag eru þunglyndi, kvíði og samskiptavandi og að komum vegna kvíðatilvika hefur fjölgað mikið hjá náms- og starfsráðgjöfum. Viðmælendur sögðu að undirbúningur námsins væri ófullnægjandi og þörf hefði verið fyrir ýtarlegri fræðslu varðandi raskanir nemenda til að undirbúa þá fyrir ráðgjöf við nemendur með raskanir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhanna Lúvísa Reynisdóttir 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/24183
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/24183