Back to search

University of Iceland

Ráðningarferli hjá hinu opinbera: Álit umboðsmanns Alþingis 2010-2015

Abstract

dc:description.abstract

Rannsókn þessi miðar að því að kanna hvað betur mætti fara í ráðningarferli hjá hinu opinbera með hliðsjón af álitum umboðsmanns Alþingis árin 2010 til 2015. Jafnframt er kannað hvað hægt sé gera til að bæta ráðningarferli við opinberar ráðningar miðað við reynslu síðastliðinna fimm ára. Greind voru 28 álit umboðsmanns Alþingis á þessu tímabili sem snerust um ráðningarferli ríkisstarfsmanna. Helstu niðurstöður gefa til kynna að margt hefði mátt betur fara í ráðningarferli hjá hinu opinbera samkvæmt álitum umboðsmanns Alþingis árin 2010 til 2015. Þá má nefna að betur hefði mátt standa að gerð auglýsinga, skráningu upplýsinga og að mál væri nægilega rannsakað áður en ákvörðun var tekin um ráðningu eða skipun í embætti. Í ráðningarferlinu vantaði í sumum tilfellum að gera fullnægjandi mat á umsækjendum eða þá að handhafi veitingarvaldsins framseldi vald sitt til annarra aðila. Einnig var birting ákvörðunar og rökstuðningi ábótavant sem og að veita umsækjendum aðgang að gögnum eða kost á að njóta andmælaréttar síns. Til þess að bæta ráðningarferli hins opinbera er mikilvægt að stjórnvald kynni sér lög og reglugerðir. Auk þess væri gagnlegt að setja markvissari reglur um hvernig ferlinu skuli háttað. Ráðningaraðferðir mannauðsstjórnunar auka jafnframt líkur á því að hæfasti umsækjandinn sé valinn. Með starfsgreiningu er hægt að vanda betur ráðningar og meta hvaða aðferðir séu best til þess fallnar að meta þá hæfnisþætti sem umsækjandi skal hafa til þess að geta sinnt starfinu. Ráðningaraðferðir geta lagt mat á framtíðarframmistöðu umsækjenda í starfi og hafa því mikla þýðingu við val á nýjum starfsmönnum. Þá getur verið gagnlegt að styðjast við fleiri en eina aðferð til þess að bæta árangur í starfsmannavali enn frekar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Íris Þóra Júlíusdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23462
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23462

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Íris Þóra Júlíusdóttir 1988-. Ráðningarferli hjá hinu opinbera: Álit umboðsmanns Alþingis 2010-2015. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23462