Back to search

University of Iceland

Skilar skylduvirkni árangri? Upplifun og reynsla langtímaatvinnuleitenda með háskólamenntun af skylduvirkniúrræðum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að skoða reynslu og viðhorf langtímaatvinnuleitenda með háskólamenntun til skylduvirkni sem Vinnumálastofnun leggur upp með. Lagskipt slembiúrtak var notað og voru þátttakendur á aldrinum 36-64 ára sem áttu það allir sameiginlegt að hafa verið án atvinnu í tvö ár eða lengur og með háskólamenntun að baki. Notuð var eigindleg rannsóknaraðferð og voru viðtöl tekin við sex einstaklinga. Hlutfall háskólamenntaðra einstaklinga á atvinnuleysisskrá hefur farið hækkandi síðastliðin ár og því var áhersla lögð á að varpa ljósi á þennan tiltekna hóp atvinnuleitenda. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að atvinnuleitendur með háskólamenntun hafa almennt gott viðhorf gagnvart skylduvirkni. Samkvæmt frásögnum viðmælenda þótti þeim skylduvirkni helst gegna tveimur meginhlutverkum í atvinnuleitinni; annars vegar að veita ákveðið aðhald og gera þannig atvinnuleitina markvissari og hins vegar að bæta félagsleg tengsl atvinnuleitenda. Allir þátttakendur greindu frá því að sjálfstraust þeirra hefði minnkað í kjölfar atvinnumissisins og þótti flestum hjálplegt að hitta aðra atvinnuleitendur í sömu stöðu í skipulögðum virkniúrræðum. Þátttakendur töldu að skylduvirkni í formi námskeiða myndi helst gagnast þeim ef námskeiðshóparnir væru fámennir, kynjaskiptir og aldursdreifing væri ekki of mikil. Flestir þátttakendur töldu að skylduvirkni væri ekki til þess fallin að efla vinnufærni, heldur myndi aukið svigrúm til háskólamenntunar helst gagnast þeim til að verða á ný virkir þátttakendur á vinnumarkaði. Niðurstöður benda til að mikilvægt sé að huga að þörfum langtímaatvinnuleitenda með háskólamenntun og beita einstaklingsmiðaðri þjónustu þegar kemur að því að skilyrða þátttöku þeirra í virkniaðgerðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Margrét Anna Guðmundsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23232
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23232

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Margrét Anna Guðmundsdóttir 1987-. Skilar skylduvirkni árangri? Upplifun og reynsla langtímaatvinnuleitenda með háskólamenntun af skylduvirkniúrræðum. 2015. http://hdl.handle.net/1946/23232