Back to search

University of Iceland

Snillingurinn Bríet : greinargerð með barnabók

Abstract

dc:description.abstract

Þetta lokaverkefni er 10 ECTS eininga verkefni til BA-prófs í þroskaþjálfafræði við Háskóla Íslands. Meginmarkmið verkefnisins er tvíþætt. Annars vegar að stuðla að bættri sjálfsmynd fatlaðra barna og hins vegar að efla jákvæða ímynd fatlaðs fólks innan samfélagsins. Þannig má draga úr fordómum og viðhorfstengdum hindrunum innan samfélagsins sem hafa neikvæð áhrif á líf og lífsgæði fatlaðs fólks. Lokaverkefnið skiptist í tvo hluta. Annars vegar er um að ræða barnabókina Snillingurinn Bríet og hins vegar fræðilega greinargerð þar sem þeim hugmyndafræðilega grunni sem bókin hvílir á eru gerð skil. Barnabókin fjallar um stúlkuna Bríeti sem er sjö ára gömul og notar rafmagnshjólastól. Teiknaðar myndir og texti eru notuð til að sýna Bríeti við leik og störf. Í fræðilega hluta verkefnisins eru færð rök fyrir nauðsyn þess að skapa fötluðum börnum jákvæðar fyrirmyndir. Í þeim hluta er fjallað um félagslegan skilning á fötlun, mannréttindasjónarhorn á fötlun, valdeflingu, mótun sjálfsmyndar og stöðu fatlaðra barna í íslensku samfélagi og innan barnabókmennta. Börn spegla sig í sögupersónum barnabóka og á það sinn þátt í mótun þeirra. Fötluð börn skortir hins vegar slíkar fyrirmyndir sem sýna fatlað fólk á jákvæðan hátt og er bókin Snillingurinn Bríet heiðarleg tilraun til að bæta úr því. Það er von höfundar að börn, hvort sem þau eru fötluð eða ekki, hafi gagn og gaman af lestri bókarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Embla Rún Hakadóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23070
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23070

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Embla Rún Hakadóttir 1986-. Snillingurinn Bríet : greinargerð með barnabók. 2015. http://hdl.handle.net/1946/23070