Back to search

University of Iceland

Þemaverkefni fyrir miðstig í hönnun og smíði

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessa verkefnis var að búa til þemaverkefni fyrir hönnun og smíði fyrir miðstig með áherslu á sköpun og form náttúrunnar. Vegna áherslunnar á form náttúrunnar var ákveðið að samþætta verkefnið við náttúrufræði og unnið var út frá kennslubókinni Líf á landi í hugmyndavinnunni og við skipulag verkefnisins. Þemað var vistkerfi á Íslandi og hvað er að finna í hverju vistkerfi fyrir sig. Í þemaverkefninu voru útfærðar þrjár nálganir eftir þrem ólíkum vistkerfum og sérkennum þeirra. Áhersla var lögð á aðferðina tálgun og tálguð voru tré, plöntur og dýr. Tálgun varð fyrir valinu vegna þess að aðferðin er rótgróin handverksaðferð og reynir á sköpun hvers og eins. Aðferðin er fjölbreytt í eðli sínu og efniviðurinn er aðgengilegur. Þegar færninni er náð er auðvelt fyrir nemendur að tálga hvar sem er á sjálfstæðan hátt. Ferlið var skráð, allt frá hugmyndavinnu að lokaafurð og í lokin var sett saman myndband af afrakstrinum. Þemaverkefnið var samið með áherslu á að gera skapandi verkefni fyrir hönnun og smíði til að stuðla að fjölbreytni í námsgreininni. Í greinargerðinni er fjallað um samþættingu, þemanám og útikennslu ásamt kenningum um nám og áherslur sem birtast í aðalnámskrá grunnskóla. Þá er sérstaklega gerð grein fyrir grunnþáttunum læsi, sjálfbærni og sköpun þar sem sérstaklega var horft til þeirra við gerð verkefnisins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Júnía Sigmundsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22982
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22982

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Júnía Sigmundsdóttir 1986-. Þemaverkefni fyrir miðstig í hönnun og smíði. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22982