Back to search

University of Iceland

„Það er alltaf ástæða fyrir öllu.“ Stefnumótun á Íslandi í málaflokki einstaklinga með tvígreiningar

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að fá sjónarhorn fagfólks sem starfar í málaflokki einstaklinga með tvígreiningar (e. Dual diagnosis) á stefnumótun í málaflokknum á Íslandi hingað til. Einstaklingar með tvígreiningar eru þeir sem greindir eru með alvarlegan geðsjúkdóm og fíknisjúkdóm. Markmiðið var einnig að öðlast sýn fagfólks á hvernig stefnumótun í málaflokknum ætti að vera á Íslandi, kanna viðhorf þeirra til þjónustu og búsetuúrræða fyrir einstaklinga með tvígreiningar og hvort og eftir atvikum hvernig mætti bæta þjónustuna. Farið var yfir skilgreiningar hugtaka sem notuð voru í ritgerðinni. Þá var fjallað um málefni einstaklinga með tvígreiningar. Í því samhengi var fjallað um geðsjúkdóma á Íslandi auk þess sem fjallað var um erlendar rannsóknir um algengi þeirra. Að auki var varpað ljósi á fíknisjúkdóm og stöðuna í málaflokki vímuefna og neytenda þeirra. Farið var yfir nýjar nálganir í stefnumótun erlendis, sem lítið hafa tíðkast á Íslandi til þessa. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð við gerð rannsóknarinnar. Tekin voru viðtöl við átta einstaklinga sem starfað hafa lengi með einstaklingum með tvígreiningar. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að þátttakendur líta svo á að engin stefnumótun sé á Íslandi í málaflokki einstaklinga með tvígreiningar og nauðsynlegt sé að bæta úr því. Þátttakendur töldu of einsleit og takmörkuð búsetuúrræði vera á Íslandi fyrir þennan hóp einstaklinga og að skortur væri á samþættingu í þjónustu við einstaklinga með tvígreiningar. Niðurstöður bentu einnig til þess að löggjöf á Íslandi gerði störf innan málaflokksins flóknari. Þá töldu flestir að breyta þyrfti löggjöfinni til þess að viðunandi meðferðarstarf gæti farið fram.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Linda Rún Traustadóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22919
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22919

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Linda Rún Traustadóttir 1990-. „Það er alltaf ástæða fyrir öllu.“ Stefnumótun á Íslandi í málaflokki einstaklinga með tvígreiningar. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22919