Back to search

University of Iceland

Þekking og viðhorf verkefnastjóra félagsmiðstöðva í Hafnarfirði : til hugmyndafræðinnar og starfs með fötluðum ungmennum

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi er lokaverkefni til BA prófs við þroskaþjálfabraut Háskóla Íslands. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að athuga þekkingu á hugmyndafræði og viðhorf verkefnastjóra félagsmiðstöðva í Hafnarfirði til þátttöku fatlaðra ungmenna í starfi félagsmiðstöðvanna. Í upphafi ritgerðar er farið yfir sögu og hugmyndafræði í málefnum fólks með fötlun. Skoðuð er svo saga félagsmiðstöðva og þróun sem og skilgreining á hugtakinu tómstundir. Farið er yfir mikilvæg þroskaskref unglingsáranna og mikilvægi félagslegrar þátttöku og félagsmótun. Farið er stuttlega yfir þann lagaramma sem ber að fylgja í þjónustu við fólk með fötlun og að lokum þær hindranir sem það upplifir. Aflað var heimilda sem tengdust efninu bæði úr fötlunarfræði og félagsfræði. Tekin voru viðtöl við verkefnastjóra þriggja félagsmiðstöðva í Hafnarfirði þau kóðuð og greind. Notast var við eigindlega aðferð svo ekki er mögulegt að alhæfa um niðurstöður. Helstu niðurstöður leiddu þó í ljós að nokkuð vantar upp á þekkingu verkefnastjóra um málefni fatlaðra ungmenna og rétt þeirra til fullrar þátttöku án aðgreiningar. Ekki voru ljós markmið eða leiðir íþrótta- og tómstundaráðs Hafnarfjarðar eða félagsmiðstöðvanna til að ná betur til þessa hóps. Ljóst þykir að vitundarvakning þurfi að vera innan þessa stofnanna svo ungmenni fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á og eigi möguleika á fullri þátttöku með jafnöldrum sínum án aðgreiningar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Sveinsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22809
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22809

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Sveinsdóttir 1979-. Þekking og viðhorf verkefnastjóra félagsmiðstöðva í Hafnarfirði : til hugmyndafræðinnar og starfs með fötluðum ungmennum. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22809