Back to search

University of Iceland

Stelpur og strákar í stærðfræði : kynjamunur í stærðfræðinámi

Abstract

dc:description.abstract

Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla (2013) er jafnrétti einn af grunnþáttum menntunar. Allir eiga að hafa sömu tækifæri og þroskast á eigin forsendum og öðlast þannig raunsæja og heilbrigða sjálfsmynd. Kennarinn er í forystuhlutverki og á að laga sig að þörfum hvers og eins. Mikilvægt er að nemendur fái tækifæri til að rannsaka sjálfir og læri stærðfræði til skilnings. Lengi vel var talið að strákar stæðu sig betur í stærðfræði en ekki virðist marktækur munur þar á. Þó er munur á þeim aðferðum sem kynin beita í þrautalausnum. Stelpur beita frekar hefðbundnum aðferðum meðan strákar eru lausnamiðari og óhræddir við að prófa sig áfram með nýjum leiðum. Munur er á ríkjandi viðhorfum til kynjanna í stærðfræði. Stelpur er taldar vera samviskusamar og duglegar meðan stærðfræðin er talin liggja betur fyrir strákum og þeim finnst hún áhugaverð. Hefðbundin töflukennsla og afkastamikill dæmareikningur virðist henta strákum betur en stelpur vilja skilja viðfangsefnin. Kynjaskipting í stærðfræðinámi er ein leið til að draga úr kynjamun. Í kynjaskiptum bekkjum eykst sjálfstraust stelpna auk þess sem áhugi þeirra á raunvísindum vex. Góður kennari og viðhorf nemenda hafa einnig áhrif. Hin hliðin er að staðalímyndir verða sýnilegri og horft er á kynin sem einsleita hópa. Niðurstaðan er sú að ekki er kynbundin munur á frammistöðu í stærðfræði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafdís Maria Matsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22521
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22521

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafdís Maria Matsdóttir 1992-. Stelpur og strákar í stærðfræði : kynjamunur í stærðfræðinámi. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22521