Back to search

University of Iceland

Réttmæti persónuleikamælinga. Samræmi sjálfsmats og makamats á persónuleikaþættinum taugaveiklun

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar er að athuga hvort sjálfsmatsmælingar og mælingar byggðar á mati annarra á persónuleikaþættinum taugaveiklun séu sambærilegar. Það verður gert með því að skoða þáttabyggingu og áreiðanleika þessara tveggja mælinga. Þátttakendur í rannsókninni voru alls 184 ásamt mökum þeirra. Pörin voru valin af hentugleika og allir þátttakendur voru sjálfboðaliðar. Pörin voru búin að vera í sambúð í sex mánuði eða lengur. Notast var við persónuleikaprófið NEO-PI-R til að mæla persónuleikaþáttinn taugaveiklun. Þátttakendur fengu spurningalista fyrir sig og maka og þeim gefin bæði munnleg og skrifleg fyrirmæli. Spurningalistunum var síðan safnað saman og unnið var úr niðurstöðum. Þegar heildarniðurstöður sjálfsmats og mats maka eru bornar saman kemur í ljós að afar lítill munur er til staðar. Dreifing svara var örlítið meiri hjá mati maka og aðeins fleiri atriði spurningalistans stemmdu við upprunalegu þáttabygginguna í sjálfsmatinu heldur en í makamatinu. Þessi munur var þó ekki mikill og gæti verið tilkominn vegna tilviljunar. Niðurstöðurnar benda því til þess að sjálfsmat og mat maka sé mjög sambærilegt. Það er því ekki ástæða til að draga í efa gagnsemi þess að nota samræmi í sjálfsmati og mati annarra á persónuleikaþáttum til að meta réttmæti sjálfsmats á grundvelli þessara niðurstaðna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Fanney Ósk Pálsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21567
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21567

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Fanney Ósk Pálsdóttir 1989-. Réttmæti persónuleikamælinga. Samræmi sjálfsmats og makamats á persónuleikaþættinum taugaveiklun. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21567