Back to search

University of Iceland

Rafrænt einelti meðal barna og unglinga og notkun samfélagsmiðla

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur ritgerðarinnar er að varpa ljósi á þær hættur sem felast í aukinni netnotkun barna og unglinga sem getur leitt til rafræns eineltis. Ritgerðin er heimildaritgerð og í henni verður fjallað um einelti, tengsl við félagsnámskenninguna ásamt afleiðingum eineltis á börn og unglinga. Rafrænt einelti verður sérstaklega skoðað, fjallað um samfélagsmiðla á netinu, niðurstöður kannana á notkun netmiðla og hver sé ábyrgð samfélagsins. Rafrænt einelti fer fram á netinu en með Internetinu skapaðist vettvangur fyrir aukin samskipti og um leið varð til nýr vettvangur fyrir beitingu eineltis á meðal ungs fólks. Samkvæmt félagsnámskenningunni (e. social learning theory) læra börn og unglingar af samfélaginu ásamt því að samspil einstaklingsins, umhverfis og hegðunar er samofið. Því er afar mikilvægt að þær stofnanir sem koma að uppeldismálum, hvort sem það eru skólarnir eða heimilin, leggi sig fram í að fræða og upplýsa börn og unglinga um afleiðingar eineltis og umgengnisreglur á netinu. Helstu niðurstöður rannsókna eru að afleiðingar eineltis geti haft alvarlegar afleiðingar á andlega heilsu barna og unglinga og langvarandi einelti getur leitt til kvíða og þunglyndis á fullorðinsárum. Niðurstöður rannsókna benda einnig til mikilvægi fræðslu og forvarna og að fylgni sé á milli rafræns eineltis og eineltis í skólanum. Ábyrgð samfélagsins er því mikil í að vinna að forvörnum gegn þeim skaðvaldi sem eineltið er.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Unnur Birna Magnúsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21029
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21029

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Unnur Birna Magnúsdóttir 1991-. Rafrænt einelti meðal barna og unglinga og notkun samfélagsmiðla. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21029