Back to search

University of Iceland

Makrílveiðar: Ólík staða skipaflokka skoðuð út frá jafnræðissjónarmiðum

Abstract

dc:description.abstract

Árið 2012 var fyrirkomulagi makrílveiða í íslensku fiskveiðilögsögunni breytt með setningu reglugerðar um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa nr. 329/2012. Fól sú breyting í sér að veiðileyfi frystitogara voru bundin við þau skip sem fengu veiðileyfi árið 2011 sbr. 3. tölul. 2. gr. reglugerðarinnar, en sambærileg regla var ekki látin ná til krókabáta og ísfiskstogara. Sú spurning vaknar hvort heimilt sé að mismuna útgerðaraðilum á grundvelli þeirra viðmiða sem gert var og þá sérstaklega í ljósi þess ákvæðis í íslensku stjórnarskránni sem kveður á um jafnræði fyrir lögum sbr. 65. gr. Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins nr. 33/1944 (hér eftir stjskr) er æðsta réttarheimild Íslands. Almenn lög sem Alþingi samþykkir þurfa ávallt að samræmast stjórnarskrá og einnig reglugerðir sem settar eru með stoð í lögum. Í rauninni þurfa flestar aðgerðir löggjafarvaldsins og framkvæmdavaldsins ávallt að standast stjórnarskrána. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að skoða, með eftirarandi rannsóknarspurningu, hvort þessi æðsta réttarheimild landsins, nánar tiltekið 65. gr., hafi mögulega verið brotin: Fól ákvæði 3. tölul. 2. gr. reglugerðar um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa nr. 329/2012 í sér ólögmæta mismunun gagnvart útgerðum ísfiskstogara og krókabáta? Reglugerðir nr. 327/2013 og 376/2014 um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa fyrir árin 2013 og 2014 eru sama marki brenndar og myndu því eðli málsins samkvæmt einnig teljast ólögmætar, ef svarið við framangreindri spurningu verður á þann veg, að mismunun sé talin hafa átt sér stað. Mun ritgerðin miðast við útgerðir þeirra krókabáta og ísfiskstogara er voru fyrir hendi árið 2011 og stunduðu veiðar þegar allir þrír flokkarnir voru opnir fyrir nýliðun, en ekki þau skip sem komu ný að veiðunum eftir að lokun frystitogaraflokksins hafði átt sér stað.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karl Óli Lúðvíksson 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21019
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21019

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karl Óli Lúðvíksson 1989-. Makrílveiðar: Ólík staða skipaflokka skoðuð út frá jafnræðissjónarmiðum. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21019