Back to search

University of Iceland

Bloggfærsla sem auglýsing: Trúverðugleiki og áhrif á kaupáform neytenda

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni ritgerðarinnar er að kanna mun á trúverðugleika auglýsinga og bloggfærslna og hver áhrif þeirra eru á kaupáform fólks. Framkvæmd var megindleg rannsókn þar sem spurningalisti var lagður fyrir 149 þátttakendur sem tóku þátt eftir að hafa séð rannsókninni deilt á samfélagsmiðinum Facebook. Rannsóknin var sett upp á vefsíðunni QuestionPro.com og sá hugbúnaður síðunnar um að skipta þátttakendum handahófskennt í tvo hópa. Hóparnir tveir fengu síðan sitt hvort áreitið. Annar hópurinn las bloggfærslu skrifaða af bloggaranum Elísabetu Gunnarsdóttur hjá Trendnet en hinn hópurinn skoðaði auglýsingu hannaða af rannsakanda. Unnið var út frá sama þema við gerð auglýsingarinnar og bloggfærslunnar. Það var gert til þess að sömu upplýsingar kæmu fram hjá báðum hópum svo að misjöfn upplýsingagjöf yrði ekki áhrifaþáttur. Þegar þátttakendur höfðu lokið við að skoða áreitið sem fyrir þá var lagt fengu báðir hóparnir sama spurningalistann. Alls voru átta spurningar á spurningalistanum, fimm spurningar sneru að trúverðugleika, ein að kaupáformum auk tveggja bakgrunnsspurninga um kyn þátttakenda og aldur. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að bloggfærslur eru metnar trúverðugri en hefðbundnar auglýsingar. Auk þess kom fram að bloggfærslur hafa meiri áhrif á kaupáform heldur en hefðbundnar auglýsingar. Þó ekki sé hægt að alhæfa neitt með niðurstöðurnar eða yfirfæra þær á alla landsmenn, þá gefa þær góða mynd af virkni bloggfærslna sem auglýsinga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Egill Björnsson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20285
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20285

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Egill Björnsson 1987-. Bloggfærsla sem auglýsing: Trúverðugleiki og áhrif á kaupáform neytenda. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20285