Back to search

University of Iceland

Jafnvægið milli vinnu og fjölskydulífs: Áhrif vaktavinnu/óreglulegs vinnutíma á togstreitu milli vinnu og fjölskyldulífs

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar er að kanna áhrif óreglulegs vinnutíma á jafnvægið milli vinnu og fjölskyldulífs. Rannsókn þessari er ætlað að leiða í ljós hvort að munur sé á upplifun starfsfólks á togstreitu milli vinnu og fjölskyldulífs eftir því hvort það stundar reglulegan eða óreglulegan vinnutíma. Áhrif óreglulegs vinnutíma, líkt og vaktavinna, á jafnvægið milli vinnu og fjölskyldulífs hafa verið mikið rannsökuð og sýna niðurstöður oft neikvæð áhrif óreglulegs vinnutíma (Albertsen, Rafnsdóttir, Grimsmo, Tómasson og Kauppinen, 2008; Fenwick og Tausig, 2001; Jansen, Kant, Nijhuis, Swaen og Kristensen, 2004). Það er ekki einungis vinnutími sem hefur áhrif á samspil vinnu og fjölskyldulífs, það eru fjölmargir þættir sem hafa áhrif á þetta flókna samspil. Hér verða áhrif sveigjanleika í starfi, kyns og aldur barna á togstreitu milli vinnu og fjölskyldulífs könnuð. Notast var við megindlega aðferðafræði við gerð þessara rannsóknar. Spurningalisti var sendur með tölvupósti til starfsfólks tveggja fyrirtækja. Alls höfðu 960 manns möguleika á að svara könnuninni. Heildar svarhlutfallið var 26,6% en af 255 þátttakendum luku 246 við könnunina. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru eftirfarandi. Á bilinu 32% til 39% þátttakenda upplifa togstreitu milli vinnu og fjölskyldulífs. Ekki var marktækur munur á þeim sem stunda vaktavinnu og þeim sem stunda dagvinnu, þó virtust konur sem stunda vaktavinnu upplifa oftar togstreitu en þær sem stunda dagvinnu en munurinn var ekki marktækur. Marktækur munur fannst þó á milli þeirra sem stunda átta klukkustunda vaktir og þeirra sem stunda lengri vaktir eða dagvinnu þar sem þeir sem stunda átta klukkustunda vaktir upplifa meiri togstreitu milli vinnu og fjölskyldulífs. Ekkert samband mældist milli sveigjanleika í starfi og togstreitu milli vinnu og fjölskyldulífs og ekki var marktækur munur á upplifun kynjanna á togstreitu milli vinnu og fjölskyldulífs. Aldur barna virtist þó hafa mikil áhrif en þeir sem eiga yngsta barn á leikskólaaldri upplifa marktækt meiri togstreitu milli vinnu og fjölskyldulífs en aðrir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðfinna Erla Jörundsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20282
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20282

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðfinna Erla Jörundsdóttir 1986-. Jafnvægið milli vinnu og fjölskydulífs: Áhrif vaktavinnu/óreglulegs vinnutíma á togstreitu milli vinnu og fjölskyldulífs. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20282