Back to search

University of Iceland

Samspil trúar og stjórnmála í Egyptalandi

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er leitað svara við því hvort Íslamska bræðralagið í Egyptalandi sé ólýðræðislegt afl en hreyfingin skilgreinir sig innan ramma trúarlegs lýðræðis. Fyrst er hugmyndafræðilegur bakgrunnur lýðræðis skilgreindur og kenningar grunnhyggju (foundationalism)og fjölhyggju(pluralism) notaðar til að varpa ljósi á hann. Í ritgerðinni verður reynt að varpa ljósi á þær sögulegu aðstæður sem Íslamska bræðralagið sprettur upp úr og hvernig þær hafi getað ýtt undir útbreiðslu hugmyndafræði þess. Ítarlega er fjallað um helstu hugmyndafræðinga Íslamska bræðralagsins og tíðarandann sem ríkti á mótunarárum hreyfingarinnar. Sagt er frá leiðtogum Egyptalands, hvernig þeir hafa mótað egypskt samfélag og hvaða afleiðingar stefna þeirra hefur haft á hugmyndafræði Íslamska bræðralagsins og annarra hreyfinga íslamista. Meginniðurstöður ritgerðarinnar eru að þegar stofnanauppbygging og stefna Íslamska bræðralagsins í Egyptalandi er skoðuð með hliðsjón af kenningum um lýðræði (democratic theory) kemur í ljós að hún er algjörlega á skjön við grunninntak lýðræðis, þ.e. stjórnar-skrárvarinn rétt almennings til að kjósa sér fulltrúa. Eins er hugmyndafræði Íslamska bræðralagsins gjörólík kenningum fjölhyggju. Samkvæmt þeim er fólki frjálst að styðja skoðanir sem henta því, hvort sem þær eru trúarlegs eðlis, veraldlegar, siðferðislegar eða ósiðferðislegar. Frelsið til að velja er ein mikilvægasta stoð lýðræðis. Hugmyndafræði Íslamska bræðralagsins fellur því ekki á nokkurn hátt að þeirri skilgreiningu þar sem hún byggist á algildum sannleik, þ.e. eigin túlkun og útfærslu á íslam. Slík sjónarmið eru ekki samrýmanleg hugmyndum lýðræðisríkja.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Aðalbjörg Sigurðardóttir 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20216
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20216

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Aðalbjörg Sigurðardóttir 1969-. Samspil trúar og stjórnmála í Egyptalandi. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20216