Back to search

University of Iceland

„Þessi endalausa óvissa“: Reynsla foreldra í greiðsluvanda

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að skoða stöðu foreldra í greiðsluvanda og kanna reynslu þeirra og upplifanir. Tvær tegundir eigindlegra aðferða voru notaðar. Annars vegar var framkvæmd stefnugreining á aðgerðum og úrræðum fyrir einstaklinga og fjölskyldur í greiðsluvanda. Hins vegar voru tekin viðtöl við fimm pör foreldra barna á grunnskólaaldri sem leitað höfðu til umboðsmanns skuldara vegna greiðsluvanda.Niðurstöður stefnugreiningar sýna að gripið hefur verið til ýmissa aðgerða til að draga úr greiðslu- og skuldavanda heimilanna, með misjöfnum árangri. Tölfræðilegar upplýsingar benda til að fjárhagsstaða heimilanna fari batnandi en að enn eigi stór hluti þeirra í erfiðleikum með að standa undir greiðslubyrði sinni og ná endum saman. Niðurstöður viðtalsrannsóknarinnar sýna að greiðsluvandi hefur víðtæk áhrif á lífskjör, líðan og félagslega þátttöku foreldra. Þá gefa frásagnir viðmælenda til kynna að greiðsluvandinn hafi haft minni áhrif á börn þeirra, fjölskyldulíf og samskipti fjölskyldumeðlima en fyrri rannsóknir hafa sýnt. Frásagnir viðmælenda sýna jafnframt að sú óvissa sem skapast vegna greiðsluvanda ýti undir vanlíðan þeirra og getu til að takast á við aðstæður sínar. Því þurfi að vinna á heildrænan hátt með einstaklingum og fjölskyldum í greiðsluvanda, til að draga úr neikvæðum afleiðingum hans á heilsu þeirra og líðan. Stefnugreining og frásagnir viðmælenda gefa til kynna að ekki hafi verið hugað af markvissum hætti að viðeigandi úrræðum hvað sálfélagslegar afleiðingar greiðsluvanda varðar og að aðgengi einstaklinga og fjölskyldna í greiðsluvanda að þjónustu fagaðila, til dæmis félags- og fjölskylduráðgjafa, sé takmarkað. Lykilorð: Efnahagshrun, greiðsluvandi, skuldavandi, foreldrar, lífskjör, bjargir, líðan, samskipti, félagsleg þátttaka

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Unnur Ósk Pálsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20061
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20061

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Unnur Ósk Pálsdóttir 1987-. „Þessi endalausa óvissa“: Reynsla foreldra í greiðsluvanda. 2014. http://hdl.handle.net/1946/20061