Back to search

University of Iceland

Hlutverk feðra : þróun og breytingar síðustu 50 árin

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um rannsóknir og skrif fræðimanna á þróun föðurhlutverksins og þá þætti sem stuðlað hafa að breytingum á því síðustu 50 ár. Eins er henni ætlað að varpa ljósi á mikilvægi feðra í lífi barna sinna og hver aðkoma stjórnvalda hefur verið í að styrkja feður til aukinnar þátttöku í uppeldi barna sinna. Leitast er við að svara rannsóknarspurningunum: Hver eru helstu uppeldishlutverk feðra í upphafi 21. aldar? Hvernig hefur hlutverk feðra þróast og breyst frá árinu 1960? Hvaða þættir hafa helst stuðlað að breytingum á hlutverki feðra? Niðurstöður benda til að hlutverk feðra hafi færst frá því að vera fyrirvinna fjölskyldunnar í að vera virkur þátttakandi innan fjölskyldunnar og í umönnun barna sinna. Feður sem taka virkan þátt í uppeldi barna sinna tengjast þeim tilfinningaböndum og hafa áhrif á þroska þeirra og velferð. Stefna stjórnvalda um sjálfstætt fæðingarorlof feðrum til handa virðist hafa haft jákvæð áhrif á þátttöku þeirra í uppeldi og menntun barna sinna. Þörf er á frekari rannsóknum á áherslum feðra í samskiptum við börn sín.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Heiða Rut Ingólfsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18988
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18988

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiða Rut Ingólfsdóttir 1985-. Hlutverk feðra : þróun og breytingar síðustu 50 árin. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18988