Back to search

University of Iceland

Fagleg þjónusta í tómstunda- og íþróttastarfi í fámennum sveitarfélögum

Abstract

dc:description.abstract

Verkefni þetta er lokaverkefni til BA-gráðu úr tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands. Rannsóknarspurningin sem ég legg fyrir og leitast við að svara er þessi: Hvernig er farsælast að standa að tómstunda- og íþróttastarfi í fámennum sveitarfélögum? Markmið mitt er að ritgerðin eigi eftir að gagnast fámennum sveitarfélögum á Íslandi. Fjallað verður um mikilvægi tómstunda, kosti þess og galla að búa í fámennu sveitarfélagi og þær hindranir sem geta átt sér stað í tómstunda- og íþróttastarfi í fámennum sveitarfélögum. Auk þess verða skoðuð þau lög og réttindi sem til eru er varða tómstunda- og íþróttastarf hér á landi. Þar á eftir verður fjallað um niðurstöður á eigindlegri rannsókn sem gerð var um fagumhverfi í tómstunda- og íþróttastarfi tveggja fámennra sveitarfélaga, Dalvíkurbyggðar og Grindavíkurbæjar. Sendir voru spurningalistar á þá aðila sem hafa umsjón með tómstunda- og íþróttastarfi hjá þessum sveitarfélögum og voru niðurstöður byggðar á upplýsingum fengnum þaðan og af heimasíðum sveitarfélaganna. Niðurstöður rannsóknarinnar voru umfangsmiklar og ljóst var að erfitt er að heimfæra þær yfir á önnur sveitarfélög þar sem þau geta verið eins ólík og þau eru mörg. Áhersla var lögð á að sjá heildarmyndina og gáfu niðurstöðurnar góða yfirsýn yfir fagumhverfi íþrótta- og tómstundastarfs í Dalvíkurbyggð og Grindavíkurbæ. Bæði sveitarfélögin virðast standa sig ágætlega í íþrótta- og tómstundastarfi og virðast þau vera með góð verkfæri í höndunum. Niðurstöðurnar gefa þó vísbendingar um sóknarfæri og athyglisvert væri að rýna betur í einstaka þætti. Lykilhugtök: tómstundir, íþróttastarf, tómstundastarf, fámenn sveitarfélög, fagleg þjónusta, Dalvíkurbyggð, Grindavíkurbær.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Etna Marinósdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18952
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18952

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Etna Marinósdóttir 1991-. Fagleg þjónusta í tómstunda- og íþróttastarfi í fámennum sveitarfélögum. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18952