Back to search

University of Iceland

Breytingar á yfirborðshita sjávar á Nútíma á Drekasvæðinu, Norður Atlantshafi. Götungarannsókn á sjávarsetskjarna

Abstract

dc:description.abstract

Í ágúst árið 2010 var farinn rannsóknarleiðangur á vegum íslenskra og norskra stjórnvalda á Drekasvæðið, Norður Atlantshafi. Markmið hans var að safna gögnum um Jan Mayen svæðið með áherslu á mögulega olíuvinnslu. Jarðeðlisfræðilegar mælingar hafa áður verið framkvæmdar í þessum tilgangi á svæðinu. Alls voru teknir 39 djúpsjávarkjarnar og neðstu hlutar þeirra skoðaðir með tilliti til hugsanlegra kolvetnisauðlinda. Efri hlutar kjarnanna nýtast því til rannsókna á fornloftslagi, breytingum á straumakerfum og sjávarhita. Í Norður Atlantshafi og nágrenni hafa áður verið teknir sjávarsetskjarnar í sama tilgangi. Í þessu verkefni er tekinn fyrir efsti hluti kjarna A2010-11-604 sem var 70 cm langur. Hann var mældur með GEOTEK og hlutaður niður á 0,5 cm fresti en þar af voru tíu sýni valin til frekari rannsókna. Þessi sýni voru frostþurrkuð, sigtuð og götungagreind. Götungar eru einfruma sjávarlífverur sem finnast hvarvetna á hafsvæðum jarðar. Svifgötungar hafast við í yfirborðslögum sjávar og stjórnast búsvæðadreifing þeirra af hita og seltu sjávar. Kjöraðstæður hverrar tegundar eru ólíkar og því geta hlutföll þeirra sagt til um breyttar umhverfisaðstæður. Algengasta svifgötungategundin í kjarna A2010-11-604 var Neoglobigerina pachyderma (v). Hátt hlutfall þessarar arktísku tegundar bendir til þess að sjávarstraumar af pólsvæðum séu og hafi verið ríkjandi á Drekasvæðinu. Hlutföll Globigerina bulloides benda þó til hlýnunar sjávar þegar nær dregur nútíma. Hátt hlutfall Globigerina quinqueloba fyrir um 8600 árum BP gefur vísbendingu um færslu pólskila yfir Drekasvæðið á þeim tíma. Fyrri götungarannsóknir gerðar í Norður Atlantshafi endurspegla að stórum hluta þessar sömu niðurstöður í breytingum á yfirborðshita sjávar á Nútíma.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rebekka Hlín Rúnarsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18496
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18496

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rebekka Hlín Rúnarsdóttir 1991-. Breytingar á yfirborðshita sjávar á Nútíma á Drekasvæðinu, Norður Atlantshafi. Götungarannsókn á sjávarsetskjarna. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18496