University of Iceland
Óeðlilegir (atypískir) kirtlar í grófnálarsýnum frá blöðruhálskirtli. Hvaða þýðingu hefur slík greining og hefur hún forspárgildi varðandi greiningu illkynja meina síðar?
Abstract
dc:description.abstractInngangur: Krabbamein í blöðruhálskirtli er gríðarlegt vandamál meðal karlmanna á Íslandi sem og á öðrum Vesturlöndum. Vefjagreining á blöðruhálskirtilssýnum gefur oftast afdráttarlausa niðurstöðu um hvort krabbamein sé til staðar eða ekki. Í hluta sýna greinast hins vegar atypískir (óeðlilegir) kirtlar sem eru af óvissri þýðingu. Markmið: Markmið þessarar rannsóknar var að auka skilning á þýðingu atypískra kirtla í blöðruhálskirtli með því að kanna hversu oft slík greining er gerð í íslenskum efnivið og hvort munur sé á milli meinafræðinga að því leyti. Metið var hvort greining á atypískum kirtlum auki líkur á krabbameinsgreiningu síðar. Efniviður og aðferðir: Farið var í gegnum öll greiningarsvör grófnálarsýna frá blöðruhálskirtli sem bárust Rannsóknarstofu í meinafræði á Landspítalanum og Vefjarannsóknarstofunni að Suðurlandsbraut 4a á árunum 1998-2003 og þau flokkuð í 5 flokka, sýni án æxlisvaxtar, sýni með atypíu, sýni með atypíu sem þótti grunsamleg fyrir illkynja mein, sýni með PIN- breytingar og sýni með illkynja mein. Þessar upplýsingar voru síðan keyrðar saman við Krabbameinsskrá Íslands þar sem fengust upplýsingar um hvaða karlmenn fengu síðar krabbamein. Niðurstöður og umræður: Heildarfjöldi sýna var 1693 og skipting þeirra í flokka eftirfarandi: 45,4% án æxlisvaxtar, 5,2% með atypíu, 5,4% með grunsamlega atypíu, 3,8% með PIN-breytingar og 40,2% með illkynja mein. Þessi skipting var mjög breytileg milli meinafræðinga. Alls fengu 34,1% þeirra karlmanna sem greindust með atypíu eða grunsamlega atypíu síðar krabbamein en fyrir karlmenn sem greindust án æxlisvaxtar var þetta hlutfall 21,6%. Það er því ljóst að forspárgildi greiningar á atypíu er talsvert.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hrafnhildur Birgisdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/18157
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/18157