Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í notkun barnabókmennta í grunnskólum, einkum með tilliti til lestrarhvetjandi starfs. Einnig var stefnt að því að rannsóknin leiddi í ljós hvaða leitarþættir þurfi að vera í rafrænum lykli að íslenskum barnabókum til þess að hann nýtist í grunnskólastarfi. Greint er frá áhugaleysi ungs fólks á lestri og umfjöllun fræðimanna um lestrarhvetjandi skólastarf. Sagt er frá sögu flokkunar og lyklunar fagurbókmennta og dæmi tekin af lyklunarstarfi hér og erlendis. Rannsóknin var unnin með eigindlegri aðferð. Opin viðtöl voru tekin við átta einstaklinga; fimm grunnskólaskennara, einn háskólakennara og tvo starfsmenn almenningsbókasafna. Helstu niðurstöður benda til að þrátt fyrir víðtækt áhugaleysi ungs fólks á bóklestri séu barna- og unglingabækur vannýttar í lestrarhvetjandi starfi skólanna. Meginskýringin er líklega sú að kennaranemar og kennarar eiga lítinn sem engan kost á námi sem tengist barnabókmenntum. Einnig eru upplýsingaveitur um barnabókmenntir mjög af skornum skammti. Rannsóknin gefur vísbendingu um að bókasöfnin gætu lagt lestrarhvatningarstarfi grunnskólanna lið með því lykla barnabækur og opna efnisaðgang að þeim á netinu. Í niðurstöðunum er að finna tilmæli um hvaða leitarþættir þurfi að vera í rafrænum barnabókalykli til þess að hann nýtist í grunnskólastarfi. Auk þess eru ábendingar um leiðir til að kynna hann fyrir skólasamfélaginu. Niðurstöðurnar um leitarþætti hafa verið prófaðar við lyklun þrettán barnabóka. Rannsóknin getur gagnast sem fyrst áfangi í smíði rafræns lykils að barna- og unglingabókum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðlaug Richter 1953-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/17890
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/17890