University of Iceland
Skjól í skugga áfalla: Samanburður á skjóli í efnahagshruninu í Eistlandi og á Íslandi með tilliti til Evrópustefnu stjórnvalda
Abstract
dc:description.abstractÍ kjölfar alþjóðlegu efnahagskreppunnar sem reið yfir haustið 2008 stóðu stjórnvöld í fjölmörgum ríkjum frammi fyrir alvarlegum efnahagsvanda. Í þessari rannsókn var sjónum beint að Íslandi og Eistlandi en ríkin eiga það sameiginlegt að flokkast bæði til smáríkja og bæði urðu illa úti í efnahagshruninu. Stjórnvöld í ríkjunum hafa þó rekið ólíkar Evrópustefnur en Eistland er sem kunnugt er aðili að Evrópusambandinu á meðan Ísland stendur utan sambandsins. Hér var sérstaklega skoðað hvernig þessar ólíku Evrópustefnur höfðu áhrif á það skjól sem ríkin nutu varðandi efnahagshrunið. Meginrannsóknin skiptist þannig í þrennt. Skoðað var hvort Evrópustefnur stjórnvalda höfðu áhrif á skjól til að koma í veg fyrir efnahagshrunið, hvort þær höfðu áhrif á skjól þegar takast þurfti á við efnahagshrunið sjálf og hvort þær höfðu áhrif á það skjól sem ríkin nutu í uppbyggingarferlinu. Til að skoða hvort og hvar ríkin nutu skjóls í efnahagshruninu voru gögn frá alþjóðastofnunum skoðuð en einnig gögn frá innlendum aðilum í ríkjunum sjálfum. Helstu niðurstöður benda til þess að Evrópustefnur stjórnvalda í hvorugu ríkinu hafi getað veitt skjól í aðdraganda hrunsins. Þannig hafi aðgangur Íslands og Eistlands að innri mörkuðum Evrópu frekar ýtt undir þenslu en að vernda hagkerfi ríkjanna hættunni á efnahagshruni. Hins vegar varð Evrópustefna stjórnvalda í Eistlandi til þess að ríkið naut skjóls bæði í efnahagshruninu sjálfu og við uppbygginguna eftir það. Stjórnvöld á Íslandi nutu ekki slíks skjóls enda hafa þau kosið að standa utan við Evrópusambandið sjálft.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Margrét Birna Björnsdóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/17664
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/17664