Back to search

University of Iceland

Karlmenn sem starfa með börnum : hvað hindrar karlmenn að sækja í störf með ungum börnum?

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið fjallar um eigindlega rannsókn sem gerð var á karlkyns starfsmönnun leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. Litið var til viðhorfa þeirra til ástæðna þess hve fáir karlmenn starfi á leikskólum eins og raun ber vitni. Rannsóknarspurningin var því, hvað hindrar karlmenn að sækja í störf með ungum börnum? Leitað var svara við þessari spurningu og fleirum. Gagnanna var aflað með eigindlegum viðtölum við fjóra einstaklinga. Viðtölin voru greind með tilliti til rannsóknarspurningarinnar hér að ofan. Niðurstöðurnar voru nokkuð einhliða en þar kemur fram að launakjör meðal leikskólakennara séu almennt lág og því nauðsynlegt að hækka þau. Einnig kom fram að ef stjórnendur leikskólanna myndu markvisst ráða inn fleiri karla á leikskólana mætti fjölga þeim verulega, bæði í starfi og síðar námi. Þá kom í ljós að fjölgun leikskólakennara almennt, óháð kyni þeirra, sé mjög mikilvæg í okkar samfélagi þar sem eingöngu 20% starfsmanna leikskóla á höfuðborgarsvæðinu eru menntaðir sem leikskólakennarar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pétur Örn Gíslason 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17412
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17412

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pétur Örn Gíslason 1987-. Karlmenn sem starfa með börnum : hvað hindrar karlmenn að sækja í störf með ungum börnum?. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17412