Back to search

University of Iceland

Áhrif frumbernsku á tengslamyndun í framtíðinni

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi er lokaritgerð til BA prófs við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Markmið þessarar ritgerðar var að skoða tengslamyndun. Spurningin er: Hvernig gengur börnum sem hafa alist upp við misbrest og óörugg tilfinningatengsl við umönnunaraðila að tengjast öðrum einstaklingum nánum tilfinningasamböndum þegar þau verða uppkomin? Fyrst var tengslamyndun barna við umönnunaraðila sína í frumbernsku skoðað. Síðan var skoðað þegar barnið er uppkomið og fer að tengjast öðrum en upprunafjölskyldu sinni tilfinningatengslum. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að misbrestur í uppeldi og óörugg tengslamyndun í æsku getur orsakað samskonar tengslamyndun á fullorðinsárum. Einstaklingur sem fengið hefur örugga tengslamyndun á mun auðveldara með að tengjast öðrum tilfinningasambandi. Fyrir þann einstakling er það auðvelt og eðlilegt. En þeir sem hafa þróað óörugg tengsl vegna misbrest í uppeldi, hvort sem vegna obeldis eða vanrækslu, getur komið fram svipað tengslamynstur og þeir höfðu þróað í æsku. Ritgerðin er fræðileg samantekt þar sem stuðst var við rannsóknir, bækur og ritrýndar greinar ásamt íslenskum tölulegum upplýsingum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafdís Þorsteinsdóttir 1957-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17106
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17106

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafdís Þorsteinsdóttir 1957-. Áhrif frumbernsku á tengslamyndun í framtíðinni. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17106