Back to search

University of Iceland

Helstu áhrifaþættir í bataferli einstaklinga með geðrænan vanda: Þjónusta og úrræði hérlendis

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi er lokaverkefni til BA prófs við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Meginmarkmið ritgerðarinnar var að skoða hvaða þættir geta haft áhrif á bataferli einstaklinga sem stríða við geðræn vandamál og hvaða þjónusta og úrræði eru í boði fyrir þennan hóp í íslensku samfélagi. Notendarannsóknir hafa leitt í ljós að einstaklingar sem glíma við geðræn vandkvæði geta náð bata. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að bataferli fólks með geðraskanir er einstaklingsbundið þar sem áhrifaþætti eru annars vegar að finna hjá þeim sjálfum og hins vegar í nánasta umhverfi. Von, uppbygging, valdefling, sjálfsábyrgð og þátttaka eru meginþættir sem taldir eru hafa jákvæð áhrif á bataferli einstaklinga. Góð samskipti einstaklinga við fjölskyldu, fagaðila og samferðafólk er einnig talið styrkja bataferlið. Einstaklingsfordómar og samfélagslegir fordómar eru taldir vera ein helsta hindrun í bataferli einstaklinga sem glíma við geðræn vandamál. Niðurstöður sýna ennfremur að mikil gróska hefur átt sér stað hvað varðar fjölbreytni í formi stuðnings og úrræða fyrir einstaklinga sem glíma við geðræn vandkvæði og er mismundandi hvernig þau mæta ólíkum þörfum þeirra. Nýjar leiðir hafa verið farnar í þjónustu þar sem áhersla er lögð á valdeflingu, bæði hjá opinberum stofnunum og frjálsum félagasamtökum. Í ljós hefur komið að sjónarmið, þátttaka og virkni einstaklinga sem etja við geðræn vandkvæði hefur haft töluverð áhrif á þjónustu, fræðslu, skipulagningu úrræða og á meðferðarstarf. Lykilorð; geðröskun, geðheilbrigði, batahugmyndafræði, þjónusta, samfélagsleg úrræði, félagsráðgjöf.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Ásrún Ýr Rúnarsdóttir 1985-
  • Rakel Pálsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17102
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17102

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásrún Ýr Rúnarsdóttir 1985-; Rakel Pálsdóttir 1987-. Helstu áhrifaþættir í bataferli einstaklinga með geðrænan vanda: Þjónusta og úrræði hérlendis. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17102