University of Iceland
„Þá er hrópað hátt um líf og synd og glæp.“ Um rauðsokkur, frjálsar fóstureyðingar og andstöðu
Abstract
dc:description.abstractRannsókn þessi er unnin eftir aðferðum kynjasagnfræði, þar sem kenningum kynjafræði er fléttað saman við sagnfræðilega rannsóknarvinnu. Í rannsókninni er fjallað um baráttu rauðsokka fyrir frjálsum fóstureyðingum á tímabilinu 1970-1975. Rauðsokkur áttu stóran þátt í að koma endurskoðun fóstureyðingalaganna í umræðuna. Þær lögðu ríka áherslu á að í nýjum fóstureyðingalögum skyldu fóstureyðingar gerðar frjálsar og þær lögðu áherslu á aðkomu kvenna að gerð nýrra laga. Rauðsokkur settu baráttuna fyrir frjálsum fóstureyðingum í samhengi við réttindabaráttu kvenna á öðrum sviðum; sjálfsákvörðunarrétturinn var nauðsynlegur fyrir fullt kvenfrelsi. Þá fjallar rannsóknin um þá andstöðu sem rauðsokkur og málstaður þeirra mætti í fóstureyðingamálinu. Umræða í fjölmiðlum og á Alþingi var greind og komu þá í ljós þrástef í orðræðunni. Í umræðu í fjölmiðlum var rauðsokkum stillt upp í andstöðu við ríkjandi hugmyndir um kvenleika; þær hugsuðu um eigin hagsmuni, vildu ekki hugsa um börnin sín og vildu jafnvel drepa börnin sín. Þær voru sagðar valda upplausn í samfélaginu, vera lauslátar og siðspilltar. Í umræðu sérfræðinga og leikmanna á Alþingi og í fjölmiðlum mátti greina hugmyndir um vanhæfni kvenna til að taka ákvarðanir um fóstureyðingar og að frjálsar fóstureyðingar myndu ýta undir lauslæti.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gunnhildur Sigurhansdóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/17010
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/17010