University of Iceland
Ris samfélagsmiðlanna. Notkun stjórnmálaflokka á samfélagsmiðlum fyrir þingkosningar 2013
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni þessa lokaverkefnis er að kanna í hvaða mæli stjórnmálaflokkar á Íslandi nota samfélagsmiðla. Hvaða leiðir stjórnmálamenn hafa kosið til að koma boðskap sínum á framfæri nú eftir að tími flokksblaða hefur liðið undir lok og internetið og samfélagsmiðlar eru allsráðandi. Hvaða stjórnmálaflokkar á Íslandi nota samfélagsmiðla meira en aðrir. Í því samhengi kanna ég þróun á samfélagsmiðlum sem tól í kosningabaráttu og eru forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2008 í forgrunni. Með tilkomu Internetsins hefur umhverfi stjórnmálamanna breyst umtalsvert. Samfélagsmiðlar á borð við Facebook hafa gert það að verkum að stjórnmálamenn eru berskjaldaðri en áður gagnvart umtali almennings á netinu en að sama skapi hafa ný tækifæri opnast fyrir stjórnmálamenn til að ná til kjósenda með einfaldari hætti og tiltölulega litlum tilkostnaði. Þegar samfélagsmiðlasíður stjórnmálaflokkanna voru skoðaðar kom í ljós mynstur í fjölmiðlanotkun flokkanna. Samfélagsmiðlasíður þeirra eru orðnar að einskonar miðstöð allra upplýsinga sem snýr að flokknum. Flestum fréttum, greinum, ljósmyndum og myndböndum sem snúa að flokknum og fá birtingu á internetinu er deilt á Facebooksíðum flokkanna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigmar Sigfússon 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/17004
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/17004