Back to search

University of Iceland

Hver á að borga? Væntingar um greiðsluþátttöku í stjúpfjölskyldum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hverjar væntingar foreldra eru um greiðsluþátttöku í stjúpfjölskyldum. Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir þar sem tekin voru óstöðluð viðtöl. Þátttakendur rannsóknarinnar voru átta talsins; fjórar mæður sem fá greitt meðlag frá barnsföður og eru í sambúð með nýjum maka sem einnig á barn fyrir, fjórir feður sem fá börn sín í umgengni, greiða meðlag og eru í sambúð með nýrri konu sem kemur einnig með barn inn í sambandið. Að sögn feðranna eru þeir allir af vilja gerðir til að greiða meðlag ásamt því að aðstoða aukalega sé þess þörf. Hins vegar benda niðurstöður til þess að mæður sýni ákveðna uppgjöf hvað væntingar um aukna greiðsluþátttöku barnsfeðra varðar og enginn barnsfeðranna greiddi meira en það meðlag sem þeim ber skylda til með börnum sínum. Þrátt fyrir að feðurnir væru fúsir til að greiða aukalega með börnum sínum upplifðu þeir svik þegar barnsmæður óskuðu eftir aukinni greiðsluþátttöku, þá hafði sá peningur sem þeir létu af hendi farið í annað að þeirra mati. Niðurstöður sýndu ákveðna eftirsjá hjá mæðrunum að hafa einhvern tímann óskað eftir fjárhagslegri aðstoð barnsföðurs. Viðmælendur töldu gott samkomulag um fjármál innan stjúpfjölskyldunnar. Einnig töldu þeir sig ekki hafa lent í það miklum ágreiningi varðandi stjúpbörn sín að ekki hefði verið hægt að leysa hann strax. Þátttakendur rannsóknarinnar vildu allir sjá einhverskonar breytingar á lögum er varða meðlagsgreiðslur ásamt breytingum á skráningu lögheimilis. Efnisorð: Stjúptengsl, stjúpfjölskylda, greiðsluþátttaka, foreldrahlutverk, meðlag, barnabætur, fjölskyldubótakerfi, fjármál stjúpfjölskyldna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólöf Lára Ágústsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16957
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16957

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólöf Lára Ágústsdóttir 1981-. Hver á að borga? Væntingar um greiðsluþátttöku í stjúpfjölskyldum. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16957