Back to search

University of Iceland

Veflægt verkefnasafn fyrir hönnun og smíði

Abstract

dc:description.abstract

Greinargerðin fjallar um uppsetningu á verkefnabanka fyrir námsgreinina hönnun og smíði, sem höfundur hefur lengi haft áhuga á að setja saman og koma fyrir á vefnum. Nauðsynlegt er að fjölbreytt kennsluefni fyrir smíðakennara, sem styður við framkvæmd Aðalnámskrár grunnskóla fyrir hönnun og smíði, sé þeim aðgengilegt á vefnum og auðvelt sé að nálgast það, en verkefnasafnið er að finna undir slóðinni er að finna undir slóðinni http://craftidea.iceland.li/. Upphaflegt áform höfundar var að setja saman vefsíðu með hugmyndum að verkefnum fyrir allar námsgreinar innan námssviðs list- og verkgreina, þ.e. hönnun og smíði, textíl- og myndmennt. Vefsíðan mun þó í fyrstu einungis verða fyrir hönnun og smíði. Henni er ætlað að auðvelda aðgengi smíðakennara að verkefnum fyrir mismunandi aldursstig grunnskólans. Verkefnin eru mismunandi að þyngd og tekur því mislangann tíma að framkvæma þau. Þau voru valin með fjölbreytni í huga til að sem flestir nemendur finni þar eitthvað við sitt hæfi. Hinsvegar verður að athuga að mörg verkefni má nýta fyrir aðra aldurshópa, en þau eru gefin upp fyrir. Í verkefnasafninu er lögð áhersla á að kennari geri kröfur til nemenda um vandvirkni og útsjónarsemi. Einnig er þar að finna verkefni sem reyna á sjálfsbjargarviðleitni nemenda og skilning þeirra á notkun margs konar verkfæra. Leitast er við að dýpka skilning á þeim viðfangsefnum sem unnið er að hverju sinni. Einnig er lögð áhersla á að hvert verkefni uppfylli áfangamarkmið greinarinnar við lok 4, 7 og 10 bekkjar, samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla. Lokaverkefni höfundar er í tveimur hlutum. Fyrsti hlutinn er verkefnavefur fyrir smíðakennara þar sem er að finna fjölbreytt verkefni með vinnulýsingum ásamt viðeigandi myndum og vinnuteikningum. Annar hlutinn inniheldur greinargerð sem ætlað er að veita lesandanum innsýn í námsgreinina og útskýra nýtingu verkefnasafnsins fyrir starfandi smíðakenna og nemendum þeirra. Í greinargerðinni verður fjallað um Aðalnámskrá grunnskóla fyrir hönnun og smíði frá 2007, sem nú er í gildi og þær kennsluaðferðir skoðaðar sem höfundur telur að henti fyrir kennslu í hönnun og smíði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ástríður Guðmundsdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16715
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16715

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ástríður Guðmundsdóttir 1976-. Veflægt verkefnasafn fyrir hönnun og smíði. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16715