University of Iceland
Nótan 2013 : „mestu verðlaunin eru reynslan“ : um gildi og áhrif tómstundatengdra viðburða
Abstract
dc:description.abstractVettvangur tómstunda er afar fjölbreyttur en þar spila viðburðir stórt hlutverk. Í tónlistarnámi, íþróttum og listum má finna fjölda ólíkra viðburða sem hver hafa sín gildi og markmið. Í verkefninu er þessi hluti tómstundastarfs kannaður. Markmið verkefnisins er að beina kastljósinu að gildum og áhrifum tómstundatengdra viðburða fyrir einstaklinga og samfélag. Verkefnið er heimildarmynd ásamt greinargerð þar sem Nótan – Uppskeruhátíð tónlistarskóla er í brennidepli. Byrjað verður á að gera grein fyrir Nótunni, markmiðum hátíðarinnar og fyrirkomulagi. Því næst verður heimildarmyndinni gerð skil en að því loknu farið í fræðilegt samhengi viðfangsefnisins. Hugtakið viðburður verður skilgreint og rætt um hvað felst í tómstundatengdum viðburðum. Fjallað verður um tómstundir, skilgreining hugtaksins reifuð og rætt um gildi og ávinning tómstundastarfs. Þar næst verður rætt um gildi viðburða í tómstundastarfi og hugsanleg áhrif á mótun sjálfsmyndarinnar. Að endingu er svo umræðukafli þar sem þræðir greinargerðarinnar eru dregnir saman. Von mín er að verkefnið varpi ljósi á mikilvægt hlutverk viðburða í tómstundastarfi og margvísleg áhrif þeirra fyrir einstaklinga og samfélag. Eins og umfjöllun mín leiðir í ljós þá hafa viðburðir í tómstundastarfi mikið gildi og áhrif þeirra fyrir einstaklinga og samfélag er ótvírætt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Vigdís Erna Þorsteinsdóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16326
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16326