Back to search

University of Iceland

Hlutverk kennara í leik barna með einingakubba

Abstract

dc:description.abstract

Leikur er sjálfsprottinn og börn eiga auðvelt með að leika á eigin forsendum og af fúsum og frjálsum vilja. Þegar börn þróa leikhæfni sína efla þau jafningjaskipti sem og félagsleg boðskipti. Leikur er sjálfviljug athöfn og því er ekki hægt að þvinga börn til leiks. Hann er tjáning fyrir innri hvöt og er undirbúningur fyrir fullorðinsárin. Viðfangsefni ritgerðarinnar eru leikur barna, einingakubbar og hlutverk kennara. Fjallað er um gildi leiks í námi og þroska og hvað börn læra gegnum leikinn. Börnum er leikur eðlislægur og eykur hann mikið á reynslu þeirra. Hugmyndafræðina á bak við einingakubba, þá þroskaþætti sem koma fyrir í leik með þeim og stigskiptinguna í byggingarleik. Einingakubbar eru opinn efniviður sem auðveldar börnum að finna sínar eigin lausnir á því viðfangsefni sem unnið er með hverju sinni. Í leik með einingakubba byggja börn á reynslunni og hugmyndaflæði þeirra eykst. Hlutverk kennara spilar stóran þátt í starfi með börnum. Með því að hlusta á raddir barnanna, spyrja þau spurninga og vera á staðnum getur kennari kveikt áhuga barnanna á viðfangsefninu og ýtt undir þroska þeirra. Niðurstöður ritgerðarinnar gefa til kynna að mikilvægt er að auka þekkingu starfsfólks á leikskólum á gildi einingakubba og hvernig megi nota þá. Börn læra það sem fyrir þeim er haft og þar horfa þau mikið til þeirra sem eru eldri og reyndari. Einingakubbar gefa börnum óendanlega möguleika til að þróa hugmyndir sínar og skapa að vild og til að geta þroskast á þann hátt þurfa þau að hafa góðan aðgang að einingakubbum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Inga Þóra Ásdísardóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15880
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15880

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Inga Þóra Ásdísardóttir 1980-. Hlutverk kennara í leik barna með einingakubba. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15880