Back to search

University of Iceland

Notkun frammistöðumats hjá íslenskum ráðuneytum

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um frammistöðumat og notkun þess hjá ráðuneytum Stjórnarráðs Íslands. Markmiðið með rannsókninni er að kanna hvort stjórnendur í ráðuneytunum notist við formlegt frammistöðumat og ef svo er, hvaða tegund matskerfis er notuð. Mikilvægt er fyrir stjórnendur fyrirtækja og stofnana að meta frammistöðu starfsmanna sinna til að hægt sé að taka á því ef frammistaðan er ekki nógu góð og til að bæta frammistöðu starfsmanna enn frekar. Með því ætti framleiðni og árangur fyrirtækja að aukast. Margar tegundir frammistöðumatskerfa eru til en algengasta aðferðin hjá fyrirtækjum og stofnunum hér á landi er frammistöðumatsviðtal eða starfsmannasamtal eins og það er oftar kallað. Þrátt fyrir að stjórnendur flestra skipulagsheilda geri sér grein fyrir mikilvægi notkunar frammistöðumats þá virðast enn of fáir nýta sér það. Eigindleg rannsókn var gerð þar sem tekin voru viðtöl við níu stjórnendur í níu ráðuneytum, en þau voru alls tíu á þeim tíma sem rannsóknin fór fram. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að lítið sé um notkun formlegs frammistöðumats hjá ráðuneytum Stjórnarráðs Íslands. Sjö stjórnendur sögðu sitt ráðuneyti notast við frammistöðumat í formi starfsmannasamtals en einungis tveir þeirra sögðu að það væri formlegt. Tveir stjórnendur sögðu sitt ráðuneyti ekki hafa verið að meta frammistöðu starfsmanna sinna með neinum hætti nýlega. Þeir stjórnendur og ráðuneyti sem nýta sér starfsmannasamtöl sem frammistöðumatstæki reyna að gera það reglulega en misjafnt er þó eftir ráðuneytum og stjórnendum innan þeirra hversu oft samtölin fara fram. Starfsmannasamtölin eru framkvæmd á svipaðan hátt í þeim ráðuneytum sem nota þau og samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar eru viðbrögð starfsfólks við starfsmannasamtölunum almennt frekar jákvæð. Stjórnendum sem rætt var við þykir flestum ekki nógu mikið gert úr frammistöðumati og sögðust myndu vilja sjá aukna notkun þeirra ásamt því að breyta og bæta starfsmannasamtölin. Mikilvægt er að þau séu tekin reglubundið svo starfsmenn geri sér grein fyrir því hvernig þeir eru að standa sig í starfi og fái uppbyggilega endurgjöf frá yfirmönnum sínum. Með því geta starfsmenn bætt frammistöðu sína og samskipti stjórnenda og starfsmanna verða nánari og betri.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Angelien Schalk 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14993
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14993

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Angelien Schalk 1979-. Notkun frammistöðumats hjá íslenskum ráðuneytum. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14993