University of Iceland
Fjölgreinanám : eigindleg rannsókn á fjölgreinanámi við Lækjarskóla
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi byggist á eigindlegri rannsókn á fjölgreinanámi í Lækjarskóla í Hafnarfirði. Markmiðið með þessari rannsókn var að kynna okkur fjölgreinanám, út á hvað það gengur, hvaðan hugmyndin um fjölgreinanám kemur og hvort þetta fyrirkomulag í kennslu sé eitthvað sem vert er að taka upp í fleiri skólum. Viðtöl voru tekin við deildarstjóra fjölgreinanámsins og tvo nemendur sem eru eða hafa verið í fjölgreinanámi við skólann. Einn nemandinn stundar nám við deildina í 10 bekk og hinn nemandinn er útskrifaður úr fjölgreinanáminu. Auk viðtala var gagna aflað með lestri á fræðilegu efni og upplýsingar fengnar frá Lækjarskóla, bæði af heimasíðu og úr gagnagrunni skólans. Markmið með viðtölunum var að varpa ljósi á það hvernig kennurum og nemendum þykir þetta verkefni, fjölgreinanám, hafa tekist til. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að huga þarf vel að skipulagi í skólum þegar einstaklingsmiðað nám er annars vegar. Þær sýna fram á það að skólar þurfa að geta boðið nemendum upp á fjölbreytt námsefni og fjölbreyttar námsleiðir á efri árum grunnskólans til þess að hægt sé að mæta þörfum hvers nemanda fyrir sig. Ef skortur er á úrræðum eykst hættan á því að nemendur flosni snemma upp úr námi og sjái ekki tilgang í því að mennta sig frekar í framtíðinni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Bjarni Jakob Gíslason
- Brynjar Harðarson
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/1497
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/1497