Back to search

University of Iceland

„Ég fór inn um einar dyr og allt í einu stóðu 100 dyr opnar.“ Reynsla nemenda af Háskólabrú.

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í reynslu nemenda sem lokið höfðu námi af Háskólabrú og byggir á viðtölum við sjö einstaklinga, fyrrum nemendur Háskólabrúar sem stunduðu þar staðnám. Helstu niðurstöður benda til að þátttakendur sem voru allir fyrrum brotthvarfsnemar, höfðu slæma reynslu af formlega skólakerfinu sem hamlaði þeim að hefja nám á fullorðinsaldri. Aðrar hindranir voru meðal annars lágt sjálfsmat og skortur á trú á eigin getu. Einnig kom skýrt fram mikilvægi þess að nám sé lagað að þörfum fullorðinna, tekið sé tillit til reynslu þeirra og tilraun gerð til að skapa samkennd meðal nemenda í hópnum. Ávinningur námsins var að mörgu leyti persónulegur, með til dæmis auknu sjálfstrausti og aukinni trú á eigin hæfni og útskriftarskírteinið reyndist þeim stökkpallur í áframhaldandi nám. Þeir viðmælendur sem höfðu farið alla leið í óformlega skólakerfinu og hófu til að byrja með nám í Menntastoðum voru áberandi vel undirbúnir fyrir námið á Háskólabrú og er það helsta nýmælið í þessari rannsókn. Þeir einstaklingar efldust til muna, lærðu að læra og voru vel undirbúin fyrir fyrstu önnina á Háskólabrú. Vonast er til að niðurstöður þessarar rannsóknar nýtist við áframhaldandi þróun námsins á Háskólabrú og verði jafnfram gagnlegar í umræður um fullorðna námsmenn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Björk Erlendsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14932
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14932

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Björk Erlendsdóttir 1974-. „Ég fór inn um einar dyr og allt í einu stóðu 100 dyr opnar.“ Reynsla nemenda af Háskólabrú.. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14932