Back to search

University of Iceland

Hvað er að frétta? Umfjöllun um stjórnmál í íslenskum fjölmiðlum fyrir alþingiskosningarnar 2013

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að skoða stjórnmálaumfjöllun fjölmiðla á Íslandi í dag, hvaða umfjöllunarefni eru oftast á dagskrá og hverjir það eru úr heimi stjórnmálanna sem birtast í fjölmiðlum. Umfjöllun fyrir alþingiskosningarnar 2013 er notuð sem dæmi í þessu samhengi. Til þess að komast að niðurstöðu og skilja betur samband stjórnmála og fjölmiðla verður fjallað um dagskrárvald og innrömmunaráhrif fjölmiðla við framsetningu frétta og þau áhrif sem fréttaumfjöllun getur mögulega haft á samfélagið. Kenningin um fjölmiðla sem fjórða valdið verður einnig skoðuð með það fyrir augum að útskýra þau völd sem fjölmiðlar hafa og þær skyldur sem þeir bera. Næst er litið yfir sögu stjórnmála og fjölmiðla á Íslandi og þær rannsóknir sem gerðar hafa verið af íslenskum fræðimönnum. Að lokum verður farið yfir framkvæmd og niðurstöður rannsóknar sem gerð var á fréttum sem birtust í dagblöðum og kvöldfréttum sjónvarps vikuna 17.-23. mars 2013. Eigindleg innihaldsgreining leiddi í ljós að efnahagsmál eru þau mál sem fjölmiðlar gerðu oftast að umfjöllunarefni sínu í þessari viku, rúmum mánuði fyrir kosningar. Næst á eftir komu umfjallanir um þinglok og utanríkismál. Formenn „fjórflokksins“ voru áberandi viðmælendur fjölmiðlanna á meðan formenn nýrra framboða og stjórnmálafla voru nær ósýnilegir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragna Þyri Ragnarsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14807
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14807

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragna Þyri Ragnarsdóttir 1988-. Hvað er að frétta? Umfjöllun um stjórnmál í íslenskum fjölmiðlum fyrir alþingiskosningarnar 2013. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14807