University of Iceland
Virkni mónókapríns í tannlími gegn sveppasýkingu undir gervitönnum. Klínísk rannsókn
Abstract
dc:description.abstractCandidasýkingar undir gervitönnum er einn algengasti munnholssjúkdómurinn hjá einstaklingum með gervitennur. Sveppasýkingar í munnholi eru oftast meðhöndlaðar með staðbundnum sveppalyfjum, en meðferðin er oft ekki mjög áhrifarík. Auk þess getur tíð notkun sveppalyfja leitt til ónæmismyndunar. Þetta hefur aukið þörfina á nýjum meðhöndlunaraðferðum við candidasýkingum í munnholi hjá þeim sem nota gervitennur. Fituefni svo sem fitusýrur og mónóglýseríð þeirra hafa lengi verið þekkt fyrir virkni gegn örverum, en mónóglýseríðið mónókaprín hefur reynst virkast gegn Candida. Markmið verkefnisins var að framkvæma klíníska rannsókn til þess að kanna hvort hægt sé að nota tannlím með 3% mónókapríni sem fyrirbyggjandi gegn eða til meðhöndlunar á candidasýkingum undir gervitönnum. Tannlím með og án mónókapríns var framleitt fyrir klíníska rannsókn. Sextán sjálfboðaliðar tóku þátt í rannsókninni, þar sem áætlað var að sex þátttakendur myndu nota tannlím án mónókapríns og tíu þátttakendur myndu nota tannlím með 3% mónókapríni í 28 daga. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að mónókaprín í tannlími minnkar sveppafjölda á gervitönnum eftir 28 daga notkun þess. Vísbendingar eru um að tannlímið gæti einnig minnkað sveppafjölda á hörðum góm og tungu við langtíma notkun. Niðurstöður leiddu einnig í ljós að mikill fjöldi sveppa í munnholi gervitannanotenda er viðvarandi vandamál sem æskilegt væri að fyrirbyggja. Sveppafjöldi í munnholi gervitannanotenda virðist ekki hafa farið minnkandi á síðustu áratugum. Sveppasýking undir gervitönnum mun því líklega halda áfram að vera vandamál hjá þessum einstaklingum. Niðurstöðurnar benda til þess að með notkun mónókapríns í tannlími sé hægt að minnka sveppasýkingu í munnholi. Jafnvel væri sá kostur fyrir hendi að nota þetta lyfjaform sem fyrirbyggjandi meðferð við sveppasýkingu undir gervitönnum fremur en meðferðarúrræði eftir að Candida sveppir hafa náð bólfestu í munnholinu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigríður Ásta Jónsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/14591
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/14591