Back to search

University of Iceland

Notendasamráð í geðheilbrigðiskerfinu: Áhrif hugmyndafræðinnar á stefnumótun íslenskra stjórnvalda í málefnum fólks með alvarlegar geðraskanir

Abstract

dc:description.abstract

Notendasamráð hefur verið að ryðja sér til rúms sem bæði hugmyndafræðileg undirstaða í geðheilbrigðisþjónustu og vinnuaðferð fagfólks í vestrænum ríkjum allt frá sjöunda áratug síðustu aldar. Innan geðheilbrigðiskerfisins hafa notendur barist fyrir rétti sínum til þess að hafa áhrif meðferðarleiðir og önnur úrræði sem í boði eru fyrir fólk með geðraskanir. Í þessarri ritgerð er skoðað hvort notendasamráð sem hugmyndafræði hafi haft áhrif á stefnumótun íslenskra stjórnvalda í geðheilbrigðismálum og staða innleiðingar borin saman við stöðuna í Englandi. Einnig verður sagt frá því hvernig félagsráðgjafar nota þessa aðferð í vinnu með notendum geðheilbrigðiskerfisins og hvernig þessi hugmyndafræði hefur haft áhrif á þjónustu við fólk með alvarlegar geðraskanir. Niðurstöður leiða í ljós að mikil og jákvæð þróun í átt að auknu notendasamráði hefur átt sér stað í stefnumótun í málaflokknum síðustu áratugi en þróunin á Íslandi er komin töluvert styttra á veg en þróunin í Englandi. Starfsaðferð sem virkar vel til að virkja notendur er valdefling en sú aðferð fellur mjög vel að öðrum starfsaðferðum félagsráðgjafa. Hugmyndafræði notendasamráðs er áberandi í þjónustunni og sést það helst á því að innleiðing batamiðaðrar þjónustu stendur nú yfir á geðsviði Landspítalans og að fulltrúi notenda er einnig þar starfandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnhildur Vala Valsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13693
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13693

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnhildur Vala Valsdóttir 1986-. Notendasamráð í geðheilbrigðiskerfinu: Áhrif hugmyndafræðinnar á stefnumótun íslenskra stjórnvalda í málefnum fólks með alvarlegar geðraskanir. 2013. http://hdl.handle.net/1946/13693