University of Iceland
Hvernig taka velferðarkerfin á afbrotum með ólíkum hætti? Íslenska velferðarkerfið samanborið við skandinavíska velferðarkerfið annars vegar og bandaríska velferðarkerfið hins vegar
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi er lokaverkefni okkar til BA-gráðu í Félags- og atvinnulífsfræði við Háskóla Íslands. Fjallað verður um velferðarkerfin og hvernig þau eru ólík eftir samfélögum. Borin verða saman velferðarkerfin á Íslandi, Bandaríkjunum og Skandinavíu. Við munum skoða hvernig þessi ólíku velferðarkerfi taka á afbrotum, meðal annars með því að skoða hvernig þau beita refsingum á afbrotamenn. Við munum aðallega skoða refsingar við efnahagsbrotum, sem oft eru kölluð hvítflibbabrot. Leitast verður við að skoða hvernig efnahagskreppan, í upphafi 21. aldarinnar hér á landi, hafði áhrif á afbrotatíðni og þá sérstaklega aukningu hinna svokölluðu hvítflibbabrota. Velferðakerfi Bandaríkjanna og Norðurlandanna eru ólík og endurspeglast það meðal annars í ólíkum áherslum í réttarkerfum og refsiúrræðum. Niðurstöður sýna að Ísland er sífellt að færast frá velferðarkerfi Norðurlandanna í átt að hinu bandaríska, en margir líta á þetta sem neikvæða þróun. Við munum fjalla um þessi málefni út frá ólíkum kenningum og sjónarhornum innan félags- og afbrotafræðinnar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Helen Lilja Helgadóttir 1988-
- Margrét Dagbjört Flygenring 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13565
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13565