Back to search

University of Iceland

Möguleg skaðabótaábyrgð lánveitanda vegna ólögmætrar gengistryggingar lána

Abstract

dc:description.abstract

Í aðdraganda og kjölfar gjaldþrots stærstu banka landsins árið 2008 varð gengishrun á Íslandi. Afleiðingar þess endurspegluðust m.a. í talsverðum breytingum á höfuðstól lána sem gengistryggð voru með tengingu við erlenda gjaldmiðla. Mánaðarlegar afborganir ruku upp úr öllu valdi án þess að lántakendur gætu hreyft við hendi. Margir töldu forsendur fyrir lántökunni brostnar og borguðu ekki af lánum sínum. Í þessari ritgerð er könnuð réttarstaða lántakenda gengistryggðra lána og mögulega skaðabótaábyrgð lánveitenda. Ritgerðin er þannig uppsett að í öðrum kafla er byrjað á almennri umfjöllun um skaðabótaábyrgð innan samninga. Fjallað er um grundvöll skaðabótaábyrgðar innan samninga og hvaða skilyrði þarf að uppfylla. Umfjöllun er um meginreglur fjármunaréttar varðandi samningsfrelsi og skuldbindingargildi samninga. Í þriðja kafla er farið í dómaframkvæmd Hæstaréttar í nýlegum gengistryggingarmálum. Fordæmisgefandi dómar eru reifaðir og niðurstöður þeirra bornar saman svo hægt sé að svara meðal annars hvort munur sé á réttarstöðu þeirra sem tóku gengistryggð bifreiða- eða fasteignalán og hvort heiti lánssamninganna skipti máli. Í fjórða kafla er kannað hvort skaðabótaábyrgð lánveitenda sé hugsanleg og er það ásamt greiningu á dómaframkvæmd meginefni verkefnisins með áherslu á hvort skilyrði sakarreglunnar teljist uppfyllt við veitingu gengistryggðra lána.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Halldór Heiðar Hallsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13505
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13505

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Halldór Heiðar Hallsson 1986-. Möguleg skaðabótaábyrgð lánveitanda vegna ólögmætrar gengistryggingar lána. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13505