Back to search

University of Iceland

Mat á mikilvægi þjónustuþátta líkamsræktarstöðva

Abstract

dc:description.abstract

Líkamsræktarstöðvum hefur fjölgað mikið á Íslandi undanfarin ár í kjölfar aukinnar vitundarvakningar fólks um heilbrigði og hreyfingu heilsueflingarskyni. Með aukinni eftirspurn og fjölbreyttara þjónustuframboði er mikilvægt að kanna hverjar þarfir neytenda eru og væntingar þeirra til þjónustu líkamsræktarstöðva. Slíkar upplýsingar má nota til að aðlaga þjónustuframboðið og bæta þjónustugæðin og ná þannig samkeppnisforskoti á markaðnum. Markmið rannsóknarinnar er að kanna mat fólks á höfuðborgarsvæðinu á mikilvægi þjónustuþátta líkamsræktarstöðva. Jafnframt að kanna hvort munur er á þessu mati á milli hópa; þeirra sem stunda og stunda ekki líkamsrækt, á milli kynja og eftir menntun. Í rannsókninni var notast við megindlega rannsóknaraðferð þar sem spurningalisti var lagður fyrir nemendur Háskóla Íslands. Hann var sendur til þeirra í tölvupósti og bárust alls 325 svör. Notast var við spurningalistann SQS-FC (Service Quality for Fitness Centers) sem var hannaður og prófaður í Tyrklandi með það að markmiði að mæla skynjun viðskiptavina á þjónustugæðum líkamsræktarstöðva. Hann skiptist í fjórar þjónustuvíddir, starfsfólk, umhverfi og starfsemi, viðbótarþjónustu og æfingadagskrá. Niður á þjónustuvíddirnar skiptast 25 þjónustuþættir og eru þátttakendur beðnir um að taka afstöðu til mikilvægis þeirra. Niðurstöðurnar rannsóknarinnar sýna að þátttakendur meta sex þjónustuþætti líkamsræktarstöðva mikilvægari en aðra. Þeir eru „þekking og hæfni starfsfólks“, „viðeigandi tímasetning æfingatíma“, „hvatning fyrir viðskiptavini“, „að starfsfólk veiti viðskiptavinum endurgjöf á frammistöðu þeirra og árangur“, „ráðgjöf sérfræðinga“ og loks „barnagæsla“. Munur er á mati kynjanna á mikilvægi þjónustuþátta líkamsræktarstöðva, konur meta næstum helming þeirra mikilvægari en karlar eða alls 12 þjónustuþætti. Ekki er munur á mati þeirra sem stunda líkamsrækt annars vegar og þeirra sem ekki stunda líkamsrækt hins vegar á mikilvægi þjónustuþátta líkamsræktarstöðva, né eftir menntun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eyrún Huld Árnadóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13136
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13136

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eyrún Huld Árnadóttir 1978-. Mat á mikilvægi þjónustuþátta líkamsræktarstöðva. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13136