Back to search

University of Iceland

Stefnumótunarferill fyrirtækja, mótun og framkvæmd. Raundæmisrannsókn hjá Alvogen og Össuri

Abstract

dc:description.abstract

Talsvert hefur verið ritað um stefnumótunarferil fyrirtækja í gegnum tíðina en hann er sá ferill sem farið er eftir við mótun stefnu. Líta má á stefnumiðaðar áætlanir sem afurð stefnumótunarferilsins en fjárhagsáætlanir eru jafnan taldar gegna lykilhlutverki í því að innleiða stefnuna. Markmið ritgerðarinnar er að rýna í stefnumótunarferilinn með áherslu á samband stefnumiðaðra áætlana og fjárhagsáætlana. Þessi rýni beindist bæði að fræðilegum heimildum og einnig reynslu fyrirtækja. Rannsókn var gerð á tveimur fyrirtækjum, Alvogen og Össuri. Stefnumótunarferill þeirra var kortlagður og sambandið á milli stefnumiðaðra áætlana og fjárhagsáætlana kannað. Niðurstöður ritgerðarinnar varpa ljósi á að það virðist vera nokkurt tómarúm í fræðunum þegar kemur að því að lýsa sambandinu á milli stefnumiðaðra áætlana og fjárhagsáætlana. Ýmsir fræðimenn hafa bent á að nauðsynlegt sé að hafa snertiflöt á milli þessara áætlana. Þegar kemur hins vegar að þekkingu á því hvernig þessi snertiflötur eigi að vera er nánast komið að tómum kofanum. Þó hefur verið bent á að sveigjanlegar áætlanir og samvinna fólks sem kemur að stefnumiðuðum áætlunum og fjárhagsáætlunum geti styrkt sambandið á milli þeirra. Raundæmin sem skoðuð voru eru um margt mismunandi. Alvogen tvinnar saman stefnumótunarferil sinn við fjárhagsáætlunina. Áhersla er lögð á markmið til fimm ára og fjárhagsáætlun fyrirtækisins, en þessir þættir eru samtvinnaðir. Össur á hinn bóginn, vinnur út frá fjárhagsáætlun og hefur fastmótaðan stefnumótunarferil. Össur leggur talsverða vinnu við stefnumótun sína og nýtir sér fjöldann allan af tólum til að styðja við mótun og innleiðingu stefnunnar. Össur hefur nýverið innleitt víðtækari fjárhagsáætlun (beyond budgeting). Því er ljóst að samband stefnumiðaðrar áætlunar og fjárhagsáætlunar á eftir að skýrast betur þegar þeirri innleiðingu er lokið. Í báðum þessara fyrirtækja er hugað að samþættingu áætlananna og þess gætt að fjárhagsáætlanir séu sveigjanlegar með því að notast við hlaupandi spá.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Olga Lilja Ólafsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13133
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13133

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Olga Lilja Ólafsdóttir 1986-. Stefnumótunarferill fyrirtækja, mótun og framkvæmd. Raundæmisrannsókn hjá Alvogen og Össuri. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13133