Back to search

University of Iceland

Hestamennska án hindrana : valkostur fyrir alla

Abstract

dc:description.abstract

Hestamennska er mjög vinsæl tómstundaiðja hér á landi og hefur verið stunduð til fjölda ára. Þrátt fyrir fjöldann allan sem í boði er af reiðnámskeiðum víða um land hafa möguleikar fatlaðs fólks til þátttöku verið fáir þegar kemur að hestamennsku og þá sérstaklega fullorðins fólks. Sjúkraþjálfunarþátturinn hefur mest verið notaður hér á landi og verið fjallað um hann en félagslegi þátturinn hefur ekki verið skoðaður og því mikil þörf á því að skoða það betur. Markmið með þessu verkefni er að sýna fram á að það geta allir stundað hestamennsku óháð skerðingu og einnig að skoða hvað félagslegi þáttur hestamennskunnar getur gefið einstaklingum sem stunda hana. Á hestbaki er hægt að líta á fötlunina sem aðstæðubundna, vegna þess að með réttu hugarfari og rétta hestinum geta allir tekið þátt, hver á sínum forsendum. Til þess að gefa sem besta mynd af félagslega hluta hestamennskunnar tók ég eigindleg viðtöl við tvo fatlaða einstaklinga sem stundað hafa hestamennsku um tíma. Mér finnst mikilvægt að setja verkefnið fram í formi bæklings með ljósmyndum því mér finnst það segja söguna best. Niðurstöður verkefnisins varpa einnig ljósi á að hestamennska getur haft víðtæk áhrif á líf fatlaðs fólks. Ávinningurinn felst meðal annars í betri líkamlegri og andlegri líðan og meiri félagslegri þátttöku. Hestamennska er talin mjög valdeflandi fyrir fatlað fólk og eykur á sjálfstæði einstaklingsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jónína Jónsdóttir 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12974
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12974

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jónína Jónsdóttir 1970-. Hestamennska án hindrana : valkostur fyrir alla. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12974