Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð, sem er verkefnamat, er sett fram stöðumat (e. formative evaluation) á innleiðingu innra mats eða sjálfsmats í framhaldsskólum á Íslandi. Tilgangur verkefnisins er að greina þær sjálfsmatsaðferðir sem notaðar eru í framhaldsskólum landsins, hvernig þær voru mótaðar og innleiddar frá lögleiðingu sjálfsmats árið 1996. Við verkefnamatið var leitað fanga í opinberum gögnum framhaldsskólanna sem og lögum og reglugerðum er varða innra mat skóla. Þá fór fram eigindleg rannsókn þar sem byggt er á einstaklingsviðtölum við 10 stjórnendur úr íslenskum framhaldsskólum ásamt rýnihópsviðtali við 4 stjórnendur úr öðrum skólum. Niðurstöður matsins eru í stuttu máli þær að 16 árum eftir lögleiðingu sjálfsmats hafa flestir íslenskir framhaldsskólar náð að móta innra mat sem þeir telja við hæfi eftir margvíslegar tilraunir. Gerðar voru tilraunir með heilsteypt matskerfi sem ekki gengu upp og hafa flestir snúið sér að matsaðferðum sem aðlagaðar eru þörfum hvers skóla. Innra matið er talið mjög nauðsynlegt í skólastarfinu en tilfinnanlega skortir fjármagn og tíma til að sinna því. Þá benda niðurstöður til þess að skort hafi undirbúning fyrir innleiðingu sjálfsmatsins og fræðslu innan skólanna. Verkefnið var fólki ókunnugt og ekki hluti af íslenskri skólamenningu. Þurft hefði að vinna jarðveginn betur áður en hafist var handa. Meiri og markvissari stuðning hefði einnig þurft frá ráðuneyti menntamála við innleiðinguna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir 1963-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/12972
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/12972