Back to search

University of Iceland

Flugvallarmálin á níunda áratug 20.aldar. Aðskilnaður almenns farþegaflugs frá starfsemi hersins og upphaf uppbyggingar flugvalla á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er fjallað um svonefnd flugstöðvar- og varaflugvallarmál á Íslandi, en þau voru í deiglunni á 9. áratug 20. aldar. Megináherslan er á innbyrðis tengsl hugmynda um bættar innlendar flugsamgögnur og erlend hernaðarumsvif. Tvö mál verða tekin fyrir. Annars vegar er byggingarsaga Leifsstöðvar greind með vísan í stjórnmálaumræðu um borgaralega flugumferð og samskiptin við Bandaríkin í varnarmálum. Sérstaklega verður vikið að fjármögnun flugstöðvarinnar, sem íslensk og bandarísk stjórnvöld stóðu sameiginlega að. Hins vegar er fjallað um umræðuna um gerð varaflugvallar á Íslandi, en hún snerist einnig um tengslin milli vilja íslenskra stjórnvalda til að efla flugsamgöngur innanlands og samskiptin við Bandaríkin og NATO. Eins og sýnt er fram á sköruðust þessi mál að mörgu leyti, þótt afdrif þeirra yrðu ólík. Leifsstöð varð að veruleika, en hugmyndin að byggingu alþjóðlegs varaflugvallar á austfjörðum fjaraði út. Leitast er við að svara því hvers vegna fyrra málið, bygging Leifsstöðvar, náðist í gegn, en ekki síðara, er laut að byggingu varaflugvallarins. Í umfjöllun þessari verður vísað bæði til innlendra og erlendra þátta: stefnu þeirra ríkisstjórna, sem voru við völd á 9. áratugnum, í varnar- og öryggismálum og stjórnmálastandsins á Íslandi sem og þróunar í alþjóðamálum og breyttrar stöðu landsins í kalda stríðinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Geirþrúður Ósk Geirsdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12909
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12909

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Geirþrúður Ósk Geirsdóttir 1977-. Flugvallarmálin á níunda áratug 20.aldar. Aðskilnaður almenns farþegaflugs frá starfsemi hersins og upphaf uppbyggingar flugvalla á Íslandi. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12909