Abstract
dc:description.abstractJökulsárlón á Breiðamerkursandi er jökullón við rætur Breiðamerkurjökuls. Þess varð fyrst vart á fjórða áratug síðustu aldar og er nú þegar orðið dýpsta stöðuvatn landsins og dýpkar stöðugt eftir því sem jökullinn hopar. Úr lóninu rennur Jökulsá á Breiðamerkursandi um skamman veg til sjávar. Sökum þess hversu stórt lónið er þá sest framburður úr jöklinum að stærstum hluta til þar, í stað þess að berast með ánni á haf út. Árframburðurinn nær því ekki að sporna við ágangi sjávar sem brýtur af strandlínunni og hefur hún rofist um mörg hundruð metra á síðustu öld. Landris hefur þó að hluta náð að vega upp á móti þessari þróun þannig að vegstæði hringvegarins, sem liggur á mjóu hafti milli lóns og sjávar, stafar ekki hætta af rofinu á allra næstu árum. Sjávarfalla gætir í Jökulsárlóni en á flóði streymir hlýr og saltur sjór inn í lónið eftir farvegi Jökulsár sem er einungis um nokkur hundruð metra langur. Síðan streymir kaldara vatn til sjávar úr lóninu. Á þennan hátt berst varmi til lónsins sem bræðir ís sem kelft hefur frá sporði Breiðamerkurjökuls. Aðeins stopular mælingar eru til um rennsli inn og út úr lóninu en með mælingum á hitastigi sjávar sem streymir inn í Jökulsárlón og hins vegar frárennslis út úr lóninu má meta hve mikil varmaorka fer í að bræða ís í lóninu, að gefnum forsendum um rennsli. Um þetta er fjallað í ritgerðinni og þannig lögð drög að frekari rannsóknum á varmabúskap lónsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helga Lucia Bergsdóttir 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/12009
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/12009